Kosningapróf RÚV leiðir í ljós djúpstæðan ágreining á milli framboðanna ellefu sem bjóða fram í Reykjavík. Þetta á ekki síst við um skipulags- og leikskólamálin.
En það eru nokkur mál sem nánast enginn ágreiningur er um og ættu, standi framboðin við orð sín, að koma til framkvæmda á næsta tímabili. Það á til að mynda við um Miklubrautarstokkinn sem er hluti af samgöngusáttmálanum, jafnvel þótt eitt framboðanna vilji ekki taka þátt í honum líkt og lesa má í fréttinni hér að neðan.
Eina spurningin sem allir flokkar svöruðu á sama veg var fullyrðingin um að einkavæða ætti Orkuveitu Reykjavíkur. Allir flokkar sögðust mjög ósammála þeirri fullyrðingu. Sú spurning var vissulega tiltölulega opin því Orkuveitan á vissulega nokkur dótturfélög á borð við Ljósleiðarann og Carbfix og því kunna einhver framboð að vera hlynnt því að selja einhver þeirra að hluta eða að fullu.
Öll framboðin eru sammála því að lengja eigi opnunartíma sundlauganna, jafnvel þótt það kunni að kosta borgina pening. Níu framboð voru mjög sammála því og Framsókn og Okkar borg nokkuð sammála.
Öll framboð nema eitt eru sammála fullyrðingunni um að hælisleitendur á barnsaldri eigi að fá sömu þjónustu í Reykjavík og aðrir íbúar. Miðflokkurinn er nokkuð ósammála þeirri fullyrðingu. Okkar borg segist mjög sammála fullyrðingunni en setur þó þann fyrirvara að það eigi að vera á kostnað ríkisins.
Auknar niðurgreiðslur til íþrótta- og tómstundastarfs annars vegar og menningarlífs hins vegar eiga mjög upp á pallborðið hjá framboðunum. Öll framboð styðja það, með tveimur undantekningum. Okkar borg er ósammála því að niðurgreiða eigi íþrótta- og tómstundaiðkun barna meira en nú er gert og ver því við að það væri ekki ábyrgt „miðað við óstjórn undanfarinna ára“. Okkar borg styður að meiru verði veitt til að styðja menningarlíf en setur þann fyrirvara að fjárhagsstaðan bjóði tæplega upp á það fyrstu árin.
Viðreisn er eina framboðið sem vill ekki verja meiru fé til að styðja menningarlíf og bendir á að framlög Reykjavíkurborgar til menningarmála séu nú þegar hærri en landsmeðaltal.
Allir flokkar eru sammála þeirri fullyrðingu að auka þurfi fjárhagsaðstoð við þá íbúa sem lifa undir fátæktarmörkum, nema Sjálfstæðisflokkurinn sem bendir á að Reykjavíkurborg sé með hæstu fjárhagsaðstoð allra sveitarfélaga á landinu.
Eldri borgarar geta hugsað sér gott til glóðarinnar fyrir næsta kjörtímabil enda vilja öll framboð allt fyrir þennan hóp gera. Öll framboð eru sammála þeirri fullyrðingu að verja eigi meira fé í þjónustu við eldri borgara. Níu framboð af ellefu vilja að borgin greiði frístundastyrk til eldri borgara. Viðreisn segir að ef til þess komi þá eigi að tekjutengja slíka styrki og Vinstrið vill gera allar frístundir ódýrar eða ókeypis frekar en að niðurgreiða fyrir alla.
Af öðrum málum má nefna að öll framboð eru andvíg því að aðgengi almennings að útivistarsvæðinu í Heiðmörk verði takmarkað í þágu vatnsverndar. Öll framboð, bæði þau sem hafa stýrt för svo árum skiptir og þau sem hafa verið í minnihluta, eiga það sameiginlegt að telja snjómokstur og götusópun ófullnægjandi.