Fimm aðalmenn eru í hreppsnefnd Ásahrepps og fimm varamenn. Alls greiddu 127 atkvæði en 224 voru á kjörskrá. Auðir seðlar voru tveir en engir ógildir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá kjörstjórn Ásahrepps.
Gréta Guðmundsdóttir og Emil Þórðarson koma ný inn sem aðalmenn og á sama tíma fara Nanna Jónsdóttir og Þráinn Ingólfsson úr hreppsnefnd. Ásahreppur er vestast í Rangárvallasýslu á Suðurlandi.
Niðurstöður kosninganna eru eftirfarandi:
Aðalmenn:
- Ísleifur Jónasson, Kálfholti, 86 atkvæði
- Helga Björg Helgadóttir, Syðri Hamrar 3, 86 atkvæði
- Kristín Hreinsdóttir, Seli, 72 atkvæði
- Gréta V. Guðmundsdóttir, Áskoti, 47 atkvæði
- Emil Þórðarson, Berustöðum, 46 atkvæði
Varamenn í þessari röð:
- Hugrún Hannesdóttir, Fjallstúni, 35 atkvæði
- Karl Ölvisson, Þjórsártúni, 33 atkvæði
- Hannes Brynjar Sigurgeirsson, Ási 2, 32 atkvæði
- Reynir Örn Pálmason, Króki, 25 atkvæði
- Hulda Björk Haraldsdóttir, Berustöðum, 25 atkvæði