Kona ákærð vegna alvarlegs umferðarslyss

Bandarísk kona hefur verið ákærð vegna alvarlegs umferðarslyss sem varð á Suðurlandsvegi í desember árið 2024. Málið verður þingfest fyrir dómi á Selfossi 11. júní næstkomandi.
Samkvæmt ákærunni er konunni gefið að sök að hafa ekið bifreið vestur Suðurlandsveg við Paradísarhelli í Rangárþingi eystra þann 7. desember 2024, óhæf til aksturs vegna svefnleysis. Þá er hún sökuð um að hafa ekki haldið bifreið sinni nægilega til hægri og ekki gætt nægilegs hliðarbils gagnvart umferð úr gagnstæðri átt. Afleiðingin hafi verið sú að bifreið hennar fór yfir á rangan vegarhelming og lenti framan á annarri bifreið sem kom úr gagnstæðri átt.
Í ákærunni kemur fram að ökumaður hinnar bifreiðarinnar hafi hlotið mjög alvarlega áverka, meðal annars beinbrot, áverka á heila og lifur, innanbastsblæðingu og loftbrjóst. Farþegi í bíl bandarísku konunnar slasaðist einnig alvarlega og hlaut meðal annars fjölmörgum beinbrot og áverka á innri líffærum.
Saksóknari krefst þess að ákærða verði dæmd til refsingar og greiðslu sakarkostnaðar.
Jafnframt hafa verið settar fram einkaréttarkröfur í málinu. Farþegi í bifreið ákærðu krefst fimm milljóna króna í miskabætur ásamt vöxtum, en ökumaður hinnar bifreiðarinnar krefst þriggja milljóna króna í miskabætur auk vaxta og málskostnaðar.