Hvalveiðibátarnir Hvalur 8 og Hvalur 9 lögðu af stað til veiða á ný á öðrum tímanum í dag eftir að hafa legið við bryggju síðustu daga vegna slæmra veðurskilyrða á miðum úti. Tíu langreyðar hafa verið skotnar það sem af er vertíðinni, en þetta eru fyrstu hvalirnir sem veiddir eru við Íslandsstrendur frá 2023.
Bandero enn á siglingu undir vökulu auga Landhelgisgæslunnar
Mikill styr hefur staðið um veiðarnar undanfarna daga. Bandero, skip dýraverndarsinnans Paul Watson, hefur verið á siglingu innan íslenskrar efnahagslögsögu frá því um helgina, en áhöfn skipsins hefur lýst því yfir á samfélagsmiðlum að stöðva hvalveiðar við Íslandsstrendur. Landhelgisgæslan hefur fylgst með ferðum Bandero frá því skipið kom til landsins, bæði úr lofti og á sjó.
Matvælastofnun rannsakar hvers vegna dauðastríð langreyðar sem skotin var í síðasta mánuði tók meira en hálftíma. Hún var skotin fjórum sinnum með sprengiskutlum, þar af einum sem sprakk ekki, og er áætlað að dauðastríðið hafi varað í 31 mínútu.
Þóra Jóhanna Jónasdóttir, yfirdýralæknir hjá MAST, segir slík frávik alltaf litin alvarlegum augum. Verið sé að fara yfir framkvæmd veiðanna með eftirlitsmanni sem var um borð og afla gagna frá Hval. hf. Þóra segir að niðurstöður liggi að öllum líkindum fyrir í næstu viku.
Krefjast þess að hvalveiðar verði stöðvaðar
Fern dýra- og náttúruverndarsamtök hafa krafið Matvælastofnun um að stöðva hvalveiðar Hvals hf. tafarlaust og hefja ítarlega rannsókn á meintum brotum á lögum um velferð dýra.
Í sameiginlegri yfirlýsingu Dýraverndarsambands Íslands, Hvalavina, Náttúruverndarsamtaka Íslands og Samtaka um dýravelferð segir að krafan byggi á sex eftirlitsskýrslum MAST frá síðustu viku, dagsettum 22.–26. júní 2026, sem samtökin fengu afhentar á grundvelli upplýsingalaga.
„Að mati samtakanna benda skýrslurnar til ítrekaðra brota á lögum nr. 55/2013 um velferð dýra, sem banna að dýrum sé valdið ónauðsynlegri þjáningu og kveða á um að aflífun skuli fara fram með skjótum og sársaukalausum hætti,“ segir í yfirlýsingunni.
Samtökin nefna 31 mínútu dauðastríð langreyðar sem skotin var fjórum sinnum, endurtekin atvik þar sem þurfti fleiri en eitt skot til að aflífa dýr og ófullnægjandi eftirlitsgögn.