Skortur er á mat, eldsneyti og öðrum nauðsynjavörum í Venesúela og hætta á að sjúkdómar breiðist út. Hundruð björgunarliða keppast við að ná manni undan rústum, átta dögum eftir að mannskæða jarðskjálfta.
Hernan Gil Flores, 43 ára öryggisvörður, var í vinnunni þegar stóru skjálftarnir riðu yfir á miðvikudag í síðustu viku. Eiginkona hans segir að björgunarsveitir hafi náð að tala við hann og færa honum vatn.
En björgunin er sögð afar flókin og hundruð björgunarliða frá minnst sjö löndum hafa unnið að því í sameiningu síðustu þrjá sólarhringa að ná honum undan rústunum.
Skortur á ýmsum nauðsynjum
Nærri 2.300 hafa fundist látin og enn er tuga þúsunda saknað. Ástandið í Venesúela hefur verið afar slæmt síðustu ár og landið því ekki vel í stakk búið til þess að takast á við náttúruhamfarir sem þessar.
Það er skortur á mat og eldsneyti, sem gerir það að verkum að erfitt er að nota vinnuvélar við leit og björgun.
Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna hefur beðið um 50 milljón dollara, sem eru ríflega 6,3 milljarðar íslenskra króna, til þess að veita neyðaraðstoð með mat næstu þrjá mánuði.
Þá hefur heilbrigðisstarfsfólk áhyggjur af útbreiðslu sjúkdóma. Fjöldi fólks sem misst hefur heimili sín safnast saman í bráðabirgðatjaldbúðum, þar sem oft er skortur á hreinu vatni.