Ef við segjum nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst erum við enn að fresta því að ljúka máli sem þarf heldur betur að ljúka. Afleiðingin verður klofin þjóð. Miklu betra er að segja já og fara í samningaviðræður og fá samning til að taka afstöðu til. Ef sá samningur verður slæmur munum við yfirgnæfandi segja nei. Ef samningurinn verður góður munum við yfirgnæfandi segja já við inngöngu. Hvort tveggja er betra en að skilja málið eftir óklárað. Hrund Rudolfsdóttir, athafnakona, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Hrund Rudolfsdóttir: Nei núna setur okkur í ofsalega erfiða stöðu