Leikkonan Allison Janney sér ekki eftir því að hafa aldrei eignast börn. Leikkonan, sem er 66 ára, talaði opinskátt um að hafa aldrei gifst eða eignast börn í við tali við Monicu Lewinsky í þætti hennar Reclaiming With Monica Lewinsky. Janney viðurkenndi að hún hefði hugsað um hjónaband og sagði að hún hefði farið til frjósemissérfræðings á fertugsaldri.„Ég hélt alltaf að ég myndi giftast, bara vegna þess að á þeim tíma sem ég var að alast upp, þá var það það sem maður gerði,“ sagði Janney.
Hefur aldrei gift sig eða eignast börn - Ástæðan er þessi