Donald Trump Bandaríkjaforseti segist ætla að lýsa því yfir innan tíðar að Hormússund sé bandarískt yfirráðasvæði. Trump lét þessi ummæli falla á fundi í lögregluskóla á Long Island í New York í gær.
Hann sagði að þegar Bandaríkin verði búin að sigra Írana muni hann fljótlega lýsa því yfir að Hormússund sé yfirráðasvæði Bandaríkjanna. Hann sagði Bandaríkin stjórna sundinu og enginn kæmist þar í gegn nema með vilja Bandaríkjanna.
Ekki er ljóst hvort Bandaríkjaforseta er alvara með þessum ummælum.
Aðstoðarutanríkisráðherra Íran, Kazem Gharibabadi, sagði í dag í færslu á X að Hormússund væri, sé og verði áfram íranskt. Hann sagði einnig að sundið yrði opnað og lokað eingöngu samkvæmt tilskipun Írana.
Alger kyrrstaða er í samningaviðræðum milli Bandaríkjanna og Íran um Hormússund. Báðar þjóðir reyna að stýra skipaumferð um sundið.
Olíuútflutningur Írana jókst í ágúst
Íranar greindu þó frá því í gær að meðtaltal daglegs olíuútflutnings í ágúst væri mesti útflutningur síðan stríðsátök hófust 28. febrúar.
Daglegur útflutningur í ágúst hefur verið að meðaltali tvær milljónir olíutunna á dag eða um 26 milljónir tunna það sem af er ágúst.
Áður en stríðið braust út framleiddu Íranar að meðaltali um 4 milljónir olíutunna á dag og fluttu út að meðaltali um 105 milljónir tunna á mánuði.