Algjörlega einstakt hús í Reykjavík til sölu

Fallegt 179,9 fermetra einbýlishús á jörðinni Vindheimum í Reykjavík, nánar tiltekið á Kjalarnesi, hefur verið sett á sölu fyrir 129,7 milljónir króna.
Húsið var byggt árið 1990 og stendur á rúmgóðri 1,8 hektara eignarlóð þar sem búið er að planta yfir 500 trjám sem skapa skjól og gefa eigninni einstakan svip.
Eignin er vel skipulögð og hentar vel fyrir fjölskyldur. Í húsinu eru fjögur svefnherbergi og tvö baðherbergi. Alrýmið er bjart og opið með mikilli lofthæð þar sem stofa, eldhús og borðstofa mynda samfellda heild. Gólfsíðir gluggar í stofu hleypa inn ríkulegri dagsbirtu og þaðan er útgengt á sólríkan pall með heitum potti.
Inn af forstofu er rúmgott þvottahús og geymsla, auk þess sem stórt geymslurými er í risi sem ekki er talið með í skráðri fermetratölu eignarinnar.
Á lóðinni er einnig að finna rúmgóða sánu og stórt eldstæði sem auka möguleika til útivistar og samveru. Umhverfið er fjölskylduvænt og hjólaöruggt þar sem undirgöng undir þjóðveginn tryggja örugga leið í skóla og félagsheimili án þess að fara þurfi yfir umferðargötu.
Vindheimar bjóða þannig upp á rólegt og skjólgott umhverfi þar sem náttúra og fjölskylduvæn aðstaða fara saman.