Veðurspá gerir ráð fyrir ákveðnum vestlægum og suðvestlægum áttum og rigningu með köflum eða skúrum í dag, en hægari vindi norðaustan- og sunnanlands og bjartara norðaustan- og austanlands. Á morgun verður hægari vindur en á laugardag verður viðsnúningur með norðvestan strekkingi, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands:
Í dag verða fremur ákveðnar vestlægar og suðvestlægar áttir á landinu og rigning með köflum eða skúrir, en heldur hægari norðaustan- og sunnanlands og bjart að mestu norðaustan- og austanlands. Hitatölur verða á bilinu 6 til 17 stig, hlýjast norðaustanlands.
Á föstudag verður hægari vindur yfir landinu, skýjað með köflum og stöku skúrir, en rigning með köflum norðvestanlands fram á kvöld. Áfram bjart og hlýjast austanlands, en þykknar sums staðar upp með kvöldinu með skúrum.
Útlit er fyrir viðsnúning í veðri á laugardag með norðvestan strekkingi eða allhvössum vindi og skúrum austanlands. Á Suður- og Vesturlandi verður hins vegar mun hægari vindur og yfirleitt bjart með köflum, en dálitlar skúrir norðvestanlands, einkum síðdegis, og þá hægir heldur á vindi austanlands. Þá hlýnar sunnanlands, en verður heldur svalara austanlands.
Á sunnudag er svo útlit fyrir skaplegt veður um allt land, hægan vind og stöku síðdegisskúrir og líkur eru á að hitatölur muni hækka.