Enginn karlmaður starfar hér á landi sem ljósmóðir en formaður Ljósmæðrafélagsins segist endilega vilja sjá karlmenn í starfinu. Karlmenn víða erlendis starfi sem ljósmæður.
Um 130 ljósmæður af öllu landinu sátu nýlega ráðstefnu á Selfossi á sérstökum ljósmæðradegi, þar sem fjölmörg erindi voru haldin. Mikil á ánægja var með daginn en ljósmóðurfræði hefur verið kennd við Háskóla Íslands í um 30 ár. En staðreyndin er sú að konur sækja bara í námið, engir karlmenn.
Hvað segir formaður Ljósmæðrafélagsins við því?
„Það vantar ljósmæður á Íslandi og í heiminum öllum vantar milljón ljósmæður,” segir Unnur Berglind Friðriksdóttir, formaður Ljósmæðrafélags Íslands.
En hafa karlmenn einhvern tímann lært að vera ljósmæður?
„Ekki hérna á Íslandi, nei, ekki í formlegu námi en það voru karlmenn sem lærðu af yfirsetukonum og tóku við keflinu ef þær veiktust en það er ekki karlmaður hér á Íslandi, sem er formlega ljósmóðir en í Bretlandi, Nýja-Sjálandi og Ástralíu, þar er mjög mikið af karlmönnum og þar er bara alveg jafnt á við konu,” segir Unnur Berglind.
Unnur Berglind segir ekkert athugavert við að karlmenn starfi sem ljóðmæður, það sé bara frábært.
„Það væri bara gott að fá fleiri karlmenn inn í stéttina”, segir hún.
Viltu fá íslenska karlmenn sem ljósmæður?
„Já, af hverju ekki, íslenska og erlenda,” segir Unnur Berglind.