Þingmenn ræddu málið fram til klukkan hálftólf í gærkvöldi. Á mælendaskrá í dag eru þingmenn Miðflokksins auk Þorgerðar Katrínar utanríkisráðherra.
Tvær breytingartillögur voru lagðar fram í gær og er Diljá Mist Einarsdóttir þingkona Sjálfstæðisflokksins flutningsmaður þeirra beggja. Í annarri tillögunni er lagt til að þjóðaratkvæðagreiðslunni verði seinkað fram í október en í hinni eru lagt til að gerðar verði breytingar á spurningunni sem leggja á fyrir þjóðina. Utanríkismálanefnd samþykkti fyrr í þessum mánuði breytingar á spurningunni.
Í hinni tillögunni er lagt til að nýrri málsgrein verði bætt við þar sem ráðherra er gert skylt að kynna opinberlega á vef Stjórnarráðsins samningsmarkmið Íslands í mögulegum aðildarviðræðum. Þetta skuli gert eigi síðar en 30 dögum áður en þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram.
Forseti Alþingis Þórunn Sveinbjarnardóttir sagði í samtali við fréttastofu í gær að sátt væri um að klára afgreiðslu málsins í dag. Engir þingfundir eru áætlaðir á morgun og hinn og því þarf að afgreiða málið í dag ef fyrirhuguð dagsetning þjóðaratkvæðagreiðslunnar, 29. ágúst næstkomandi, á að halda sér.