Tvö stærstu uppistöðulón í Bandaríkjunum hafa aldrei verið jafn vatnslítil og nú eftir mikla þurrkatíð í vesturhluta Bandaríkjanna. Loftslagsbreytingar hafa valdið því að vatnsmagn Colarado-árinnar mælist sögulega lítið, en áin rennur í bæði Powell-vatn og Mead-vatn sem eru tvö stærstu uppistöðulón í Bandaríkjunum og sjá 40 milljónum manna fyrir vatni og rafmagni. Lækki vatnsyfirborð enn frekar gæti það haft áhrif á raforkuframleiðslu.
Sjö ríki Bandaríkjanna reiða sig á vatn frá Colarado-ánni og þeim hefur ekki tekist að koma sér saman um hvernig deila eigi auðlindinni. Bandaríkjastjórn kynnti áætlun í júlí um hvernig ríkjunum bæri að deila vatninu sín á milli.
Takmarkanir voru settar á Kaliforníu, Arizona og Nevada og þess krafist að ríkin minnkuðu vatnsneyslu sína um allt að 3,7 milljarða rúmmetra á ári til næstu tíu ára. Litlar takmarkanir voru hins vegar settar á Colorado, Utah, Wyoming og Nýju-Mexíkó. Þetta ójafnvægi milli ríkjanna gæti leitt til málaferla og Arizona hefur sett til hliðar fjármagn til þess.