Einn þeirra 17 bandarísku ríkisborgara sem voru fluttir af skemmtiferðaskipinu Hondiusi á Tenerife í gær hefur greinst með hantaveirusmit, samkvæmt heilbrigðisráðuneyti Bandaríkjanna.
Annar bandarískur ríkisborgari er með væg einkenni smits. Hópurinn verður fluttur í móttökustöð í Nebraska í Bandaríkjunum þar sem hver og einn fer í gegnum læknisskoðun og fær viðeigandi meðferð og aðstoð.
Einn franskur ríkisborgari hefur greinst með hantaveirusmit. Breska ríkisútvarpið BBC greinir frá því að allir Frakkaranir fimm sem voru á Hondiusi hafi verið settir í sóttkví í 72 tíma við komu til Parísar. Að henni lokinni gengst fólkið undir læknisskoðun áður en það fær að fara heim til sín í 45 daga heimasóttkví.
Sex ástralskir ríkisborgarar fara með flugi til Ástralíu í dag og flogið verður með 18 hollenska ríkisborgara til Hollands.