Tilkynnt var alls um sjö líkamsárásir í gærkvöldi og nótt á umráðasvæði lögreglustöðvar 1 hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Sú stöð sér um löggæslu í miðbæ, vesturbæ og austurbæ Reykjavílur auk Seltjarnarness.Þetta kemur fram í dagbók lögreglu en eins og kunnugt er standa hinsegin dagar yfir í Reykjavík og í gær fór gleðigangan fram í miðborginni.Ekki koma fram frekari upplýsingar um þessar líkamsárásir en önnur verkefni lögreglustöðvar 1 voru að 3 ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis en einn þeirra ók HOPP bifreið.
Töluverður fjöldi líkamsárása í Reykjavík