Ljóst er að margt verður um manninn á tjaldsvæðum Austurlands um helgina en spáð er steikjandi hita í landshlutanum og á hiti að fara upp í allt að 27 gráður.
Völundur Einarsson, starfsmaður á tjaldsvæðinu á Egilsstöðum, segir að fólk verði að bóka stæði á netinu sem fyrst vilji það gista á svæðinu. Hann segir stutt í að svæðið verði fullbókað.
„Það er fullt af bókunum og margir sem vilja koma hingað í blíðviðrið,“ segir Völundur í samtali við mbl.is. Hann segir marga nú þegar mætta á tjaldsvæðið.
„Ég sé bara í kerfinu að svæðin eru að verða fullbókuð strax,“ segir hann.
Síminn hringir stanslaust
Halla Eyþórsdóttir, eigandi Camp east, segir símann hafa hringt stanslaust í dag.
„Ég sit hérna við símann og hef eiginlega ekki komist í neitt annað,“ segir hún í samtali við mbl.is.
Hún segir tjaldsvæðin í fjörðunum vera þannig að ekki sé hægt að bóka fyrirfram. Ljóst sé að margir muni leggja leið sína austur á firði um helgina.