Alma Möller heilbrigðisráðherra hefur sett Þórörnu Gró Friðjónsdóttur sem forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands frá 1. júní til 1. september.
Guðjón Hauksson lætur af embættinu um mánaðamótin og tekur við starfi forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri.
Þórarna hefur starfað hjá HSA síðustu átta ár, fyrst sem rekstrarstjóri á Egilsstöðum og Vopnafirði en síðustu fjögur ár sem framkvæmdastjóri mannauðs hjá HSA.
Embætti forstjóra HSA verður auglýst laust til umsóknar á næstu dögum. Gert er ráð fyrir að nýr forstjóri stofnunarinnar verði skipaður 1. september.