„Þetta er ekki sak­laus könnunar­leiðangur“ - Vísir

„Þetta er ekki sak­laus könnunar­leiðangur“ - Vísir

„Þetta er ekki sak­laus könnunar­leiðangur“ - Vísir

Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri Fenris Creations, áður CCP, óttast að allt of mikill tími, athygli og fjárráð fari í aðildarviðræður við Evrópusambandið næstu árin fari svo að þjóðin segi já á laugardaginn.

Hann óttast að Evrópusambandið fari í fyrsta sæti og önnur verkefni, brýnni að hans mati, rati í annað sæti og fái minni athygli. Þetta er meðal þess sem Hilmar nefndi í pallborði Vísis fyrr í dag en sem dæmi um mál sem hann vill frekar að verði lögð áhersla á er að hugverka- og tækniðnaður verði stærsta útflutningsgrein Íslands.

„Þetta þarf alla okkar athygli,“ sagði Hilmar í pallborðinu sem var það þriðja á Vísi í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar á laugardag. Þar mættu þau Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Jónas Hagan Guðmundsson, fjárfestir og einn stofnenda Já, til að sjá sem fulltrúar Já-ara en Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins og Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri Fenris Creations, áður CCP, mættu fyrir hönd Nei-ara.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagðist geta tekið undir með mörgu sem Hilmar sagði og að fókusinn hjá ríkisstjórninni hefði verið á þessum málum og yrði það áfram. Staðreyndin væri samt sú að hún og ríkisstjórnin hefðu verið kosin til ákveðinna verkefna og að Samfylkingin hefði alltaf verið með á sinni stefnuskrá að sjá samning.

„Þetta snerist alltaf um tímasetningar,“ sagði Kristrún og að hún beri ábyrgð á því, þegar aðstæður og tækifæri breytast, að málið sé skoðað.

Alltaf tekið á um alþjóðamálin

Hún segir ávallt hafa verið tekist á um alþjóðamál og skuldbindingar Íslendinga. Sem dæmi hafi verið barist gegn inngöngu Íslendinga í NATO og þegar EES-samningurinn var tekinn upp á Íslandi. Þjóðin hafi ekki verið spurð og aðilar sem hafi verið á móti því séu fylgjandi þessu í dag.

Kristrún sagði rétt hjá Hilmari að þetta væri strembið og þessu fylgdi vinna en sagði allt sem hefði skilað umbótum, framförum, kerfisbreytingum og einhverju nýju hafa tekið tíma.

„Það væri rangt að láta eins og þetta skipti engu máli,“ sagði hún og ítrekaði að ferlið væri allt annað fyrir Ísland en önnur ríki því Ísland er þegar aðili að EES. Hún segir að með þessu væri Ísland að bæta við sig möguleika á að ganga inn í tollabandalag og myntsamstarf sem gæti hjálpað þegar kemur að trausti á gengisstöðugleika, vinnumarkaði og vexti nýsköpunarfyrirtækja.

Kristrún sagði það hættulega hugsun að telja að hægt sé að velja hvað við innleiðum af EES-samningi og hvað ekki. Það grafi undan samstarfinu að innleiða ekki allt sem samstarfinu fylgir. Hún segir Ísland í dag eiga í góðu samstarfi við Noreg innan EES en ákveði Noregur að sækja um í Evrópusambandið muni flosna upp úr samningnum og þá standi Ísland illa verðum við utan sambandsins.

Margoft útskýrt ummæli frá 2014

Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins sagði Kristrúnu gera sér upp skoðanir í beinni útsendingu. Hún hafi aldrei verið hlynnt vegferð Jóhönnu Sigurðardóttur á sínum tíma heldur hafi hún verið á þeim tíma nýkjörinn formaður Samtaka iðnaðarins og að henni hafi þótt rétt á þeim tíma að ljúka viðræðunum því þær hafi verið hafnar.

„Ég hef margoft útskýrt þau ummæli mín sem ég sagði 2014,“ sagði Guðrún og að já-sinnar væru stöðugt að draga þessi ummæli fram.

„Einhver tólf ára gömul ummæli mín, og ég á einhvern veginn að svara fyrir þau á meðan Kristrún getur ekki svarað fyrir tólf mánaða gömul ummæli sín,“ sagði Guðrún.

Kristrún viðurkennir að ferlið verði mikil vinna en telur að það verði þess virði. Vísir/Vilhelm

Hún segist aldrei hafa verið á móti þjóðaratkvæðagreiðslunni heldur treysti hún þjóðinni. Hún gagnrýndi Kristrúnu fyrir að tala niður EES-samninginn og tal Kristrúnar um tækifæri. Hún spurði hvað hefði breyst frá því að ríkisstjórnin tók við sem gerði það að verkum að þessi atkvæðagreiðsla þyrfti að fara fram á þessum tíma.

Guðrún sagði það „tækifærismennsku“ af hálfu ríkisstjórnarinnar að nýta átök Dana, Grænlands og annarra til að koma af ótta hjá íslensku þjóðinni og tala niður EES-samninginn.

Skítalykt af pakkanum

Kristrún sagði að sama hvernig færi á laugardag þá liði henni eins og EES-samningurinn hefði fengið byr undir báða vængi og hún væri þakklát fyrir að þingmenn muni allir standa með henni að því að verja EES-samninginn.

Hilmar ítrekaði að því loknu afstöðu sína og sagði ekkert í Evrópusambandinu hjálpa Íslandi.

„Það þarf ekkert að kíkja í pakkann, það er skítalykt af þessu máli,“ sagði hann og að stjórnvöld ættu frekar að einbeita sér að því plani sem þau þegar hafa sett.

Jónas Hagan sagði þetta ekki gott orðbragð og að krónuumhverfið skipti hann miklu máli. Hann sé úr tæknigeiranum eins og Hilmar og að það sé staðreynd að það sé erfiðara að fá fjármagn í tæknigeira á Íslandi þegar þar er íslenska krónan.

Hvað varðar samningsmarkmiðin segir Kristrún að það sé búið að leggja stóru línurnar og það sé alveg skýrt að ef það eigi að fara í þessa vegferð þá verði þau „brjálæðislega vel undirbúin“ og ætli að taka alla þjóðina með. Kristrún sagði atkvæðagreiðsluna snúast um það hvort það eigi að fara í nákvæmisvinnuna sem fylgir samningaviðræðum. Allir sem hafi verið í samningaviðræðum viti að fyrst sé byrjað á breiðum grunni og svo farið í smáatriðin.

Ævarandi áskorun sama hvað

Kristrún sagði að það erfiðasta við samningaviðræðurnar, komi til þeirra, verði samtal og samningur um eignarhald á auðlindum. Hún viti ekki hver lausnin verði núna en aðalatriðið sé að fiskurinn verði hér, rentan og vinnslan. Það verði ævarandi áskorun sama hvort Ísland verði í Evrópusambandinu eða ekki.

Jónas Hagan talaði mikið um verðtryggða krónu og að hann sæi enga leið betri til að takast á við efnahagsmál en að taka upp evru og það væri ekki hægt nema að ganga í myntsambandið. Hann sagði Íslendinga í Evrópu og hann sæi ekki hvers vegna við ættum ekki að ganga til samninga við „vini okkar“ í Evrópu.

Jónas Hagan Guðmundsson vill losna við verðtryggða krónu og telur myndbandalag Evrópusambandsins bestu lausnina. Vísir/Vilhelm

„Málið er að þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur,“ sagði Guðrún og að hér væri verið að biðja þjóðina um pólitískt umboð til að hefja viðræður við ESB frá því sem var horfið árið 2009. Markmiðið sé skýrt, að ganga í sambandið, en að skoðanakannanir hafi sýnt að meirihluti landsmanna vilji það ekki.

„Nú er Kristrún búin að bjóða okkur í bíltúr, við vitum ekki hvert og við vitum ekki hversu langan við verðum í þeim bíltúr,“ sagði Guðrún og að það væri lágmark að ríkisstjórnin segði þjóðinni hvar „rauðar línur“ hennar liggja.

Atvinnulífið í vanda

Kristrún sagðist treysta sér til að vera í tveimur vegferðum á sama tíma. Á sama tíma stjórni manneskja í hennar stöðu því ekki alltaf sjálf hvar athygli hennar sér. Til dæmis hafi henni aldrei dottið í hug að hún myndi þurfa að verja svona miklum tíma erlendis. Hún sagði ekki hægt að vera barnaleg í þessu tilliti og hún geti ekki verið þannig leiðtogi að hún hviki ekki frá plani sem hún hafi verið búin að setja sér þegar þau séu augljóst að aðstæður séu aðrar alþjóðlega en þær voru þegar planið var sett upp.

Guðrún sagði það ofar sínum skilningi af hverju Íslendingar ættu að fara til Evrópu til að semja um ákvörðunarvald á auðlindum sem við stýrumn nú þegar. Það sé staðreynd að verði af þessu þurfi Íslendingar að taka upp löggjöf Evrópusambandsins og það sé staðreynd að ekkert ríki hafi fengið undanþágu frá sjávarútvegsstefnu sambandsins.

Guðrún sagði vandamál í íslensku atvinnulífi og að þau væru að „ströggla“. Ríkisstjórnin ætti frekar að einbeita sér að því. Hún sagði fyrirtæki kvarta undan samkeppnishæfni og að það væri kostnaðarsamt verkefni.

Jónasi segist leiðast umræða um erfitt regluverk í Evrópusambandinu. Sjálfur hafi hann búið í átta löndum í Evrópu og stofnað fyrirtæki í sextán þeirra og að regluverk hafi aldrei verið honum til trafala. Það sé alltaf verið að tala um hvað Ísland eigi að gefa frá sér við inngöngu og minna talað um hvað Ísland geti fengið, sem sé að losna við verðtryggða krónu.

Kristrún segir að þó svo að þjóðin myndi segja já á laugardag vakni enginn í öðru landi á sunnudaginn. Þetta sé langt ferli og mikil vinna en að á laugardaginn eigi að greiða atkvæði um það hvort Íslendingar vilji stíga skrefið að því að vita meira og Íslendingar hafi alltaf grætt á því.

Já kannski kona

Spurð um samninganefndina, verði niðurstaðan já á laugardag, segir Kristrún að skipað verði stórt teymi. Það verði einhver framlína og það skipti máli að þessir aðilar komi úr mismunandi lögum samfélagsins svo hún geti skapað traust.

„Ég er skeptísk, ég hef sagt að ég er já kannski kona,“ segir Kristrún og að hún myndi aldrei segja já blindandi við‘ einhverju nema að vita meira. Íslendingar séu skeptískir en í nefndinni verði „grjótharðir samningamenn“ og það skipti miklu máli að það náist sátt um málið.

„Þetta verður vinna, en þetta verður þess virði ef þjóðin segir já.“

Spurð um hvað gerist segi þjóðin nei segir Guðrún á hreinu að þjóðin sé ekki að fara í þessar aðildarviðræður og hún vilji leggja áherslu á að hennar mati skorti skýr samningsmarkmið áður en þjóðin er beðin um umboð. Að hennar mati hafi Íslendingum farnast vel og það sé hægt að vera stoltur af því. Efnahagslífið sé að taka breytingum og hugverkaiðnaður að verða ein stærsta útflutningsstoðin. Ál, iðnaðarvörur, sjávarútvegur og ferðaþjónusta haldi uppi góðum lífsskjörum.

Guðrún segist ekki endilega treysta sér til að svara því hvort draga eigi umsókn til baka segi þjóðin nei á laugardag, en það sé ekki óeðlilegt. Kristrún segir þetta samtal sem þarf að eiga við þingið og að á þessum tíma þurfi þingið að koma saman, sama hver niðurstaðan verður, til að þingið geti virt það sem þjóðin segir.

Hægt er að horfa á pallborðið í heild sinni að ofan.

#ekki #könnunarleiðangur #saklaus #vísir #þetta


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262926093d/-thetta-er-ekki-saklaus-konnunarleidangur-

📰 Aðrar fréttir

Queen reflects on reading 'forbidden' Lady Chatterley's Lover under the pillow
📅 10.10.2026 👁️ 2
Queen reflects on reading 'forbidden' Lady Chatterley's Lover under the pillow
In BBC documentary The Book That Changed My Life, the Queen speaks about memorable moments in her own reading.
Nord Stream trial: How German police followed the evidence - to Ukraine
📅 10.10.2026 👁️ 2
Nord Stream trial: How German police followed the evidence - to Ukraine
After four years, a Ukrainian man is set to stand trial in Hamburg accused of sabotaging the Nord Stream pipelines.
Lýsa yfir neyðarástandi í þremur ríkjum vegna fellibyls
📅 10.10.2026 👁️ 2
Lýsa yfir neyðarástandi í þremur ríkjum vegna fellibyls
Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Flórída, Alabama og Georgíu í Bandaríkjunum vegna fellibylsins Isaias sem nú gengur yfir. Veðurfræðingar vara vi...
Flydubai attacker began drifting towards extremism in Australia, UAE says
📅 10.10.2026 👁️ 2
Flydubai attacker began drifting towards extremism in Australia, UAE says
The United Arab Emirates' attorney-general also alleges the co-pilot was trying to crash the plane into Tel Aviv's airport.
Friðarsúla Yoko Ono tendruð í tuttugasta sinn
📅 10.10.2026 👁️ 3
Friðarsúla Yoko Ono tendruð í tuttugasta sinn
Friðarsúla Yoko Ono var tendruð í tuttugasta sinn í Viðey í gærkvöld og var friðsæl athöfn haldin í Viðey af því tilefni. Tónlistarkonan Árný Margrét ...
Life-threatening Hurricane Isaias makes landfall in Florida
📅 10.10.2026 👁️ 3
Life-threatening Hurricane Isaias makes landfall in Florida
The storm took direct aim at Florida and is expected to impact Alabama, Georgia, and Louisiana.
Öflugur jarðskjálfti af stærðinni 7,7
📅 10.10.2026 👁️ 3
Öflugur jarðskjálfti af stærðinni 7,7
Jarðskjálfti af stærðinni 7,7 varð í Panama í gær, um klukkan 18:00 að íslenskum tíma. Skjálftinn átti upptök sín um tíu kílómetra frá litlum bæ, Pita...
Trump og Pútín gera samning um dísilolíu
📅 10.10.2026 👁️ 4
Trump og Pútín gera samning um dísilolíu
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að hann hafi komist að samkomulagi við Vladimír Pútín Rússlandsforseta um afhendingu á 300.000 tonnum af dísilolí...
Vance ætlar ekki að horfa á af­tökuna í beinni - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Vance ætlar ekki að horfa á af­tökuna í beinni - Vísir
Hasan, sem myrti þrettán manns í skotárás á Fort Hood-herstöðinni árið 2009, á að verða tekinn af lífi af aftökusveit í desember. Vance ræddi málið vi...
CJP, Gyanesh Kumar: Tens of thousands of forces deployed as Delhi braces for cockroach protest
📅 09.10.2026 👁️ 4
CJP, Gyanesh Kumar: Tens of thousands of forces deployed as Delhi braces for cockroach protest
Several trains to Delhi have been cancelled and dozens of metro stations are shut to stop protesters from gathering.
UK weather: a weekend of showers and sunshine ahead of warmer temperatures next week
📅 09.10.2026 👁️ 4
UK weather: a weekend of showers and sunshine ahead of warmer temperatures next week
With sunshine and showers forecast for the weekend, next week could see a return to some warmer temperatures but there will be gales for some.
Vance ekki spenntur fyrir aftökunni í beinni - „Þá ætla ég ekki að horfa“
📅 09.10.2026 👁️ 4
Vance ekki spenntur fyrir aftökunni í beinni - „Þá ætla ég ekki að horfa“
J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna er ekki áhugasamur um fyrirhugaða aftöku á Nidal Malik Hasan sem myrti 13 manns í herstöðinni Fort Hood í Texas á...
Þekkir þú RÚV stefin?
📅 09.10.2026 👁️ 4
Þekkir þú RÚV stefin?
Upphafsstef þáttanna sem sendir hafa verið út á rásum RÚV í gegnum tíðina eru sem greypt inn í minni þjóðarinnar.Trompetleikarinn Tumi Torfason hefur ...
Screams, haunting scenes and deadly hide-and-seek, as Celebrity Traitors heats up
📅 09.10.2026 👁️ 4
Screams, haunting scenes and deadly hide-and-seek, as Celebrity Traitors heats up
Episode four saw another contestant killed off, a ghoulish mission near a graveyard and a spooky twist.
Fréttir Vikunnar: Fimleikaæfingar Dorritar og 40 ára afmæli Stöðvar 2
📅 09.10.2026 👁️ 4
Fréttir Vikunnar: Fimleikaæfingar Dorritar og 40 ára afmæli Stöðvar 2
Bergild Festival fór yfir fréttir vikunnar í Vikunni með Gísla Marteini í kvöld. Ýmislegt bar á góma, til að mynda heimsókn Marco Rubio, utanríkisráðh...
Trump's shock Russia deal highlights mounting pressure to curb fuel prices
📅 09.10.2026 👁️ 4
Trump's shock Russia deal highlights mounting pressure to curb fuel prices
The US president hopes to ease his party's pain before next month's midterm elections, writes the BBC's North America correspondent.
Aflífun í beinni útsendingu fordæmd en Trump er sama
📅 09.10.2026 👁️ 1
Aflífun í beinni útsendingu fordæmd en Trump er sama
Aflífun í beinni útsendingu fordæmd en Trump er sama Stríðs­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna er for­dæmd­ur fyr­ir að boða beina út­send­ingu af af­líf­...
Kolbeinn Stefánsson hjólar í fjölmiðla og háskólasamfélagið: „Við erum tilbúin að trúa öllu slæmu um karla“
📅 09.10.2026 👁️ 4
Kolbeinn Stefánsson hjólar í fjölmiðla og háskólasamfélagið: „Við erum tilbúin að trúa öllu slæmu um karla“
Kolbeinn Stefánsson, dósent við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands, gagnrýnir harðlega hvernig íslenskir fjölmiðlar fjölluðu um umdeilda rannsókn á ...
Reynir Valgeirsson skrifar: Skálanesbót – fuglarnir voru þar á undan kvíunum
📅 09.10.2026 👁️ 4
Reynir Valgeirsson skrifar: Skálanesbót – fuglarnir voru þar á undan kvíunum
Forspjall: Skálanes, landið, fólkið og fuglarnir
Trump rýfur einangrun Rússlands
📅 09.10.2026 👁️ 4
Trump rýfur einangrun Rússlands
Trump rýfur einangrun Rússlands Banda­ríkja­for­seti af­nem­ur við­skipta­bann Vest­ur­landa á olíu frá Rússlandi, sem átti að þvinga Vla­dimír Pútín ...
Faðir nauðgaði 14 ára stúlku á meðan móðirin tók það upp á farsímann sinn
📅 09.10.2026 👁️ 4
Faðir nauðgaði 14 ára stúlku á meðan móðirin tók það upp á farsímann sinn
Foreldrar fjórtán ára stúlku í Indlandi hafa verið handteknir eftir hrottalegt kynferðisbrot gagnvart henni. Faðirinn nauðgaði stúlkunni á meðan móðir...
JD Vance ætlar ekki að horfa á aftöku Hasans verði henni streymt
📅 09.10.2026 👁️ 4
JD Vance ætlar ekki að horfa á aftöku Hasans verði henni streymt
JD Vance varaforseti Bandaríkjanna segist ekki ætla að horfa á aftöku Nidals Hasans, fyrrverandi majórs í Bandaríkjaher, verði hún sýnd í beinni útsen...
Skrúð­gangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Skrúð­gangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu - Vísir
Chris Bryant, Norður-Írlandsmálaráðherra í bresku ríkisstjórninni, greindi frá ákvörðuninni í kvöld. Hún kemur í kjölfar nærri tveggja vikna átakastöð...
Gengur ekki að fjöldaframleiða framandi ágenga tegund
📅 09.10.2026 👁️ 4
Gengur ekki að fjöldaframleiða framandi ágenga tegund
Minkar og menn eru til umræðu á ráðstefnu sem er haldin í Norræna húsinu og er á vegum Samtaka um dýravelferð. Samtökin vilja Ísland án loðdýraræktar ...
Three men found guilty of murdering two Australian surfer brothers and US friend
📅 09.10.2026 👁️ 4
Three men found guilty of murdering two Australian surfer brothers and US friend
The bodies of Jake and Callum Robinson and their friend Carter Rhoad were found at the bottom of a well.
Reynir Valgeirsson skrifar: Selstaðavík – landið, hafsbotninn, byggðin og versta hamfarasviðsmyndin
📅 09.10.2026 👁️ 4
Reynir Valgeirsson skrifar: Selstaðavík – landið, hafsbotninn, byggðin og versta hamfarasviðsmyndin
Forspjall: Selstaðavík, landið, hafsbotninn og byggðin:Áður en sjálf hamfarasviðsmyndin er rakin þarf að sjá staðinn fyrir sér sem eina heild. Selstað...
Kvartaði yfir Sjúkratryggingum og heilbrigðisráðuneytinu vegna andláts dóttur sinnar á erlendu sjúkrahúsi - Alma beðin um almennar upplýsingar vegna málsins
📅 09.10.2026 👁️ 4
Kvartaði yfir Sjúkratryggingum og heilbrigðisráðuneytinu vegna andláts dóttur sinnar á erlendu sjúkrahúsi - Alma beðin um almennar upplýsingar vegna málsins
Umboðsmaður alþingis telur ekki tilefni til að halda áfram meðferð kvörtunar sem maður nokkur lagði fram vegna andláts dóttur hans á sjúkrahúsi í ónef...
Trump samdi við Pútín um dísel - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Trump samdi við Pútín um dísel - Vísir
Bandaríkjastjórn hefur samhliða þessu slakað tímabundið á höftum á rússneskum orkufyrirtækjum svo olían komist á markað. Trump greindi frá samkomulagi...
Sóttvarnarráðstöfunum aflétt í Rússlandi
📅 09.10.2026 👁️ 4
Sóttvarnarráðstöfunum aflétt í Rússlandi
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin kallar eftir því að rússnesk stjórnvöld deili gögnum um andlát starfsmanns á rannsóknastofu. Grunur vaknaði um að hún hefð...
Aukin heilsuefling eldra fólks gæti sparað 20 milljarða á ári
📅 09.10.2026 👁️ 4
Aukin heilsuefling eldra fólks gæti sparað 20 milljarða á ári
Hægt væri að spara ríkissjóði 20 milljarða á ári með því að seinka vistun þúsund manns á hjúkrunarheimili um eitt ár.Þetta segir Janus Guðlaugsson íþr...
„Við erum næstum að kæfa fram­halds­skóla­stigið“ - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
„Við erum næstum að kæfa fram­halds­skóla­stigið“ - Vísir
Í framsögu Magnúsar Þórs Jónssonar, formanns Kennarasambands Íslands, á fundinum kom fram að skólakerfið verði ekki byggt með skyndilausnum frá einu k...
Fjölbragðaglímumaður handtekinn eftir ólöglegt tak á 75 ára dómara sem dó í hringnum
📅 09.10.2026 👁️ 4
Fjölbragðaglímumaður handtekinn eftir ólöglegt tak á 75 ára dómara sem dó í hringnum
Fjölbragðaglímukappi í Mexíkó hefur verið handtekinn eftir að hafa tekið 75 ára gamlan dómara ólöglegu glímutaki. Dómarinn lést í kjölfarið.Miðillinn ...
Ölgerðin sögð hafa rutt samkeppni úr vegi með kröfu um einkasölu
📅 09.10.2026 👁️ 4
Ölgerðin sögð hafa rutt samkeppni úr vegi með kröfu um einkasölu
Samkeppniseftirlitið réðst í húsleit hjá Beru, móðurfélagi Ölgerðarinnar, í morgun vegna gruns um að Ölgerðin hefði gerst sek um misnotkun á markaðsrá...
Drumcree: Secretary of state Sir Chris Bryant to ban the Drumcree parade
📅 09.10.2026 👁️ 4
Drumcree: Secretary of state Sir Chris Bryant to ban the Drumcree parade
The parade has led to a stand-off between Orangemen and nationalist residents of the Garvaghy Road in Portadown lasting almost two weeks.
Vance biðlar til ungra reiðra manna - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Vance biðlar til ungra reiðra manna - Vísir
Miklu púðri hefur að undanförnu verið varið í að ná til ungra bandarískra manna og hefur JD Vance varaforseti verið fenginn sérstaklega í það verkefni...
Fordæma það að Pillay hafi fengið friðarverðlaun Nóbels
📅 09.10.2026 👁️ 4
Fordæma það að Pillay hafi fengið friðarverðlaun Nóbels
Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels sakar Navi Pillay, friðarverðlaunahafa Nóbels í ár, um gyðingafordóma. Pillay hefur kallað stríðsrekstur Í...
Trump announces deal for Russian diesel as Zelensky criticises 'gift to Putin'
📅 09.10.2026 👁️ 4
Trump announces deal for Russian diesel as Zelensky criticises 'gift to Putin'
Ukraine's president said allowing Russia to sell petroleum products would prolong a war that must be ended.
Trump announces deal for Russian diesel as Zelensky calls it a 'gift to Putin'
📅 09.10.2026 👁️ 4
Trump announces deal for Russian diesel as Zelensky calls it a 'gift to Putin'
Ukraine's president sharply criticised the move, calling it an "investment in war that must be ended, not prolonged".
Arion banki krefst tuga milljóna frá huldufyrirtæki sem stýrt er af manni sem finnst ekki
📅 09.10.2026 👁️ 4
Arion banki krefst tuga milljóna frá huldufyrirtæki sem stýrt er af manni sem finnst ekki
Arion banki hefur stefnt fyrirtæki, sem lítið fer fyrir og ekki virðast finnast merki um á skráðu heimilisfangi þess, til greiðslu um 83 milljóna krón...
Commentator Katie Zacharia picked as new White House press secretary
📅 09.10.2026 👁️ 4
Commentator Katie Zacharia picked as new White House press secretary
The conservative commentator currently works as a communications adviser at Trump Media & Technology Group.
Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir - Vísir
Greint er frá því í dagbók lögreglunnar að þetta hafi gerst í umdæmi lögreglustöðvar tvö sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi.  ...
Man arrested for allegedly setting fire to a dog in south Tenerife
📅 09.10.2026 👁️ 4
Man arrested for allegedly setting fire to a dog in south Tenerife
A man has been arrested in Adeje, south Tenerife, on suspicion of burning a dog alive, in a disturbing case that has also exposed wider concerns about...
JD Vance casts doubt on firing squad execution and says he won't watch it
📅 09.10.2026 👁️ 4
JD Vance casts doubt on firing squad execution and says he won't watch it
The planned execution of Nidal Hasan by firing squad would be the first military execution in more than 60 years.
Sigurveig I. Jónsdóttir er látin
📅 09.10.2026 👁️ 4
Sigurveig I. Jónsdóttir er látin
Sigurveig I. Jónsdóttir, fyrrverandi fréttastjóri Fréttastofu Stöðvar 2 og upplýsingafulltrúi Íslandsbanka, er látin 83 ára að aldri.Þetta kemur fram ...
Seldu ó­vart hjól við­skipta­vinar - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Seldu ó­vart hjól við­skipta­vinar - Vísir
Nytjamarkaðurinn lýsti eftir kaupandanum á samfélagsmiðlum í dag. Um rautt reiðhjól hafi verið að ræða sem selt hafi verið fyrir slysni enda nóg af öð...
Sigur­veig I. Jóns­dóttir er látin - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Sigur­veig I. Jóns­dóttir er látin - Vísir
Sigurveig I. Jónsdóttir, fyrrum fréttastjóri Fréttastofu Stöðvar 2 og upplýsingafulltrúi Íslandsbanka lést í dag, 9. október. Sigurveig fæddist í Reyk...
Þing­menn laumuðust í laugina eftir lokun - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Þing­menn laumuðust í laugina eftir lokun - Vísir
Þingmenn Norðausturkjördæmis fóru í sund í Selárlaug í Vopnafirði eftir lokun í kjördæmaviku. Sveitarstjórnarfulltrúi er sagður hafa gefið leyfi fyrir...
„Skemmtilegt hvernig okkar bókmenntaflóra hefur orðið ríkari með fólki sem hefur hingað flutt“
📅 09.10.2026 👁️ 4
„Skemmtilegt hvernig okkar bókmenntaflóra hefur orðið ríkari með fólki sem hefur hingað flutt“
„Þau eru auðvitað stórkostleg og ég byrja á því að óska henni til hamingju,“ segir Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, inntur ...
Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing - Vísir
„Ég get staðfest að ég heyrði í nokkrum félögum úr verkalýðshreyfingunni um þetta og sömuleiðis að ég er ekki að fara fram,“ segir Katrín í skriflegu ...
Fimm ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps í bílakjallaranum við Höfðatorg
📅 09.10.2026 👁️ 4
Fimm ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps í bílakjallaranum við Höfðatorg
Kareem M. M. Abufarah hefur hlotið fimm ára fangelsisdóm fyrir tilraun til manndráps með því að hafa ekið á mann á miklum hraða í bílakjallaranum við ...