Sýrlensk stjórnvöld segja tilgang viðræðna háttsettra embættismanna við sendinefnd Ísraela í Jórdaníu vera að draga úr þeirri spennu sem myndast hefur vegna nýlegra árása Ísraelshers á landið, sem einnig hefur valdið verulegum núningi milli Tyrkja og Ísraelsmanna. Tyrkir eru bandamenn Sýrlendinga. Bandaríkjamenn höfðu milligöngu um viðræðurnar.
Ísraelsmenn gerðu loftárásir á ónotaða flugherstöð í síðustu viku að sögn til að koma í veg fyrir að tyrkneskir hermenn kæmu sér þar fyrir.
Sýrlendingar segja viðræðurnar hafa miðað að því að jafna sjónarmið Ísraela og Tyrkja en jafnframt að tryggja að aukin spenna þeirra á milli bitni ekki á Sýrlandi. Ísrael hefur gert hundruð árása á Sýrland síðan í desember 2024 þegar sveitir íslamista felldu forsetann Bashar al-Assad.
AFP segir Assad al-Shaibani, utanríkisráðherra Sýrlands og Roman Gofman, yfirmann ísraelsku leyniþjónustunnar Mossad, hafa rætt stofnun sérstaks aðgerðateymis í Jórdaníu undir handarjaðri Bandaríkjamanna til að koma í veg fyrir átök í Sýrlandi, meðal annars með íhlutun Tyrkja.
Stigmögnuð hnútuköst hafa gengið milli Benjamíns Netanjahú forsætisráðherra Ísraels og Recep Tayyep Erdogan Tyrklandsforseta frá því árásin var gerð á herstöðina. Tom Barrack sendifulltrúi Bandaríkjanna í Sýrlandi ávítaði Ísraela harðlega og sagði árásina hafa verið hreinan óþarfa.