Silja Sóley Birgisdóttir, oddviti Sósíalistaflokksins í Reykjavík, lýsir yfir miklum efasemdum um samstarf Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Viðreisnar í borgarstjórn Reykjavíkur.
Af tvennu illu sé þessi niðurstaða þó skárri kosturinn og telur hún Hildi hafa gert það rétta í stöðunni með að útiloka Miðflokkinn.
„Ég tel það mjög klókt hjá Hildi að hún velji að starfa með þessum flokkum. Þetta var kosturinn sem var líklegastur til að ná samhljómi og trausti og ég held að það hefði orðið erfiðara með Miðflokki,“ segir Silja í samtali við mbl.is.
„Ég er samt ekki ánægð með hægrisveiflu í borginni. Sjálfstæðiflokkurinn, Viðreisn og Framsókn hafa aðeins gefið út nokkra hluti á verkefnalistanum sínum og ekki er kominn neinn heildstæður sáttmáli en mér fannst afar varhugavert að þar var ekkert minnst á húsnæðis- og leikskólamál.“
Vonar að þau standi við borgarlínu
Útlit er fyrir að nýr meirihluti muni ráðast í einhverja endurskoðun á samgöngusáttmálanum, en Silja segist ekki styðja slíkt.
„Viðreisn og Framsókn hafa lýst yfir meiri stuðningi við samgöngusáttmálann, þannig það er spurning um hversu mikið þau munu taka upp í endurskoðun sáttmálans en ég hef verulegar áhyggjur af því að borgarlínan muni tefjast enn meira,“ segir Silja.
Hún ítrekar að lokum að hún og hennar flokkur muni veita nýjum meirihluta staðfast og nauðsynlegt „vinstra aðhald“ í störfum sínum en hún segist ekki sjá fyrir að geta átt í miklu samstarfi við Miðflokkinn í þeim störfum.