Í kosningunum 16. maí síðastliðinn fékk S-listi Samfylkingar og óháðra flest atkvæði og þrjá bæjarfulltrúa kjörna. D-listi Sjálfstæðisflokks og óháðra kom þar á eftir og fékk tvo fulltrúa kjörna. Saman mynda listarnir fimm manna meirihluta en Framsókn og Miðflokkur fengu tvo menn hvor.
Helstu byggðakjarnar Suðurnesjabæjar eru Sandgerði og Garður. Í tilkynningu segir að áframhaldandi vinna verði lögð í sameiningu byggðakjarnanna tveggja. Þá verði áhersla lögð á að styrkja stöðu Suðurnesjabæjar, lækka álögur á íbúa og bæta lífsgæði allra íbúa með það að leiðarljósi að móta samfélag fyrir alla.