RÚV segir Dani og Svía halla undir Trump

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Ríki innan Evrópusambandsins sem ekki taka upp evru gera það af pólitískum ástæðum og eru líklega undir áhrifum frá Trump Bandaríkjaforseta. Á þessa leið túlkar RÚV þá staðreynd að sex ríkin innan ESB afþakka evruna sem gjaldmiðil.
Hvorki Svíar né Danir nota evru. Ungverjar, Pólverjar og Rúmenar ekki heldur. Sjötta ESB-ríkið utan evru-samstarfsins, Tékkland, ákvað nýlega að leggja á hilluna áform um að ganga inn í myntbandalagið. RÚV kemur til sögunnar og býður upp á sérkennilega túlkun. Ríki sem ekki vilja evru láta ekki efnahagsleg sjónarmið ráða ferðinni heldur pólitík sem er undir Trump-áhrifum.
Frétt RÚV um ákvörðun Tékka að reka áfram sjálfstæðan gjaldmiðil og hafna miðstýrðri peningastefnu ESB gengur út á að óeðlilegar ástæður liggi að baki. RÚV talar um pólitík, þjóðernissinnaða kjósendur er leiddu Andej Babis forsætisráðherra til valda og, auðvitað, að Babis sé ,,dyggur stuðningsmaður Bandaríkjaforseta." Er Babis varð forsætisráðherra fyrir sex mánuðum var fyrirsögn RÚV: Trump-aðdáandi og auðkýfingur aftur orðinn forsætisráðherra.
Í ESB-málum ræður ríkisfjölmiðillinn ekki við sig. Fréttaflutningur skal miðast við að Ísland eigi að verða aðildarríki Evrópusambandsins. Erlendar fréttir eru skrifaðar til að læða inn þeirri hugsun að evran sé lögeyrir öðrum æðri. Ríki sem eiga kost á evru, en afþakka pent, séu undir annarlegum áhrifum.
RÚV og ESB-sinnar freista þess að selja Íslendingum þá hugmynd að þjóðin ,,græði" á ESB-aðild. Er fyrir liggur að Ísland myndi greiða meira til ESB en landið fær tilbaka frá Brussel verður að búa til þá sögu að evra sé óteljandi milljarða virði.
Gjaldmiðlar sem slíkir hvorki búa til né eyða verðmætum. Yfir tíma rýrna allir gjaldmiðlar. Maður fær ekki sömu verðmætin fyrir hundrað dollara í dag í New York og maður gerði fyrir tíu árum.
Íslenska krónan, ólíkt evru og dollar, endurspeglar íslenskt hagkerfi. Á veltiárum styrkist krónan, kaupmáttur hennar eykst; innkaup á erlendum vörum verður hagkvæmari og fríið á Tene kostar minna í krónum talið. Í samdrætti lækkar krónan. Allir fá minna fyrir mánaðarlaunin. Krónan hagar sér eins og sannur jafnaðarmaður. Í góðæri eykst kaupmáttur allra en í hallæri dreifir gjaldmiðillinn byrðinni.
Hagvöxtur og samdráttur í íslensku efnahagskerfi myndi ekki hverfa með evru (eða dollar). Í samdrætti kæmi atvinnuleysi í stað gengisaðlögunar. Í hagvexti ykist ekki kaupmáttur evru, hann stæði í stað.
Gjaldmiðlar eru hitamælar á þau hagkerfi sem þeir þjóna. Útlendur gjaldmiðill, evra eða dollar, myndi sjaldan eða aldrei sýna rétta hitastigið á íslensku hagkerfi.
Þær sex þjóðir Evrópusambandsins, sem ekki hafa tekið upp evru, kjósa gjaldmiðla sem þjóna innlendum hagsmunum á breidd og dýpt. RÚV starfar ekki þágu innlendra hagsmuna og hagar fréttaflutningi til samræmis.