Esmaeil Baqaei, talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins, segir Íran sé á lokastigum við að ganga frá viljayfirlýsingu við Bandaríkin.
Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir tilkynningu um samkomulag við Íran, sem gæti formlega bundið enda á stríðið í Miðausturlöndum, mögulega síðar í dag. Fullyrðir ráðherrann að markmiðum Bandaríkjanna hafi verið náð.
Í samtali við fréttamenn í Nýju Delí á Indlandi, þar sem Rubio var staddur í sinni fyrstu opinberu heimsókn, sagði hann möguleika á því að heimurinn fái góðar fréttir á næstu klukkustundum.
Heimurinn þurfi ekki að óttast íranskt kjarnorkuvopn
Sagði Rubio að samkomulagið sem væri í uppsiglingu myndi taka á áhyggjum Donalds Trumps Bandaríkjaforseta varðandi Hormússund, sem Íranir hafa að mestu lokað í kjölfar árása Bandaríkjanna og Ísraels.
Samkomulagið myndi einnig hefja ferli sem geti á endanum komið okkur þangað sem forsetinn vill að við séum og það er heimur sem þarf ekki lengur að óttast eða hafa áhyggjur af írönsku kjarnorkuvopni, bætti ráðherrann við.
„Þegar þessi átök við Íran hófust voru markmiðin sett fram, þau voru mjög einföld, þau voru mjög skýr – við ætluðum að eyðileggja flota þeirra, sem var gert,“ sagði Rubio.
Hann sagði þá að Bandaríkin hefðu einnig stefnt að því að draga verulega úr getu Írans til að skjóta langdrægum flugskeytum.
„Þetta voru markmið Epic Fury. Þeim markmiðum var náð.“
