Skipta þarf um efsta lag þaks leikskólans Reynisholts í Grafarholti eftir að upp komst smávægilegur leki, að sögn Guðna Guðmundssonar, skrifstofustjóra á skrifstofu framkvæmda og fasteignaþjónustu borgarinnar.
„Þetta kom upp fyrir tveimur vikum og nú er verið að klára gögn til að fara í innkaupaferli og verkefnastjórinn sem er með þetta er í góðu samstarfi við leikskólastjórann um hvernig megi gera þetta þannig að þetta hafi sem minnst áhrif á starfsemi skólans,“ segir Guðni í samtali við mbl.is.
Segjast ekki geta tekið á móti börnum
Í tölvupósti sem mbl.is hefur undir höndum frá Elínu Júlíönu Sverrisdóttur, leikskólastjóra Reynisholts, til annarra leikskólastjóra segir að skólinn geti ekki tekið á móti börnum skólanna á tilsettum tíma.
„Við munum ekki geta tekið við þeim börnum sem áttu að koma til okkar frá ykkur á þeim tíma sem við vorum búin að láta foreldra hafa,“ segir í póstinum.
„Við biðlum til ykkar að taka vel á móti þeim foreldrum sem eru rétt í þessu að fá þessar upplýsingar og þurfa nú að leita til ykkar ef þeir hafa sagt upp dvalarsamningi sínum við ykkar leikskóla,“ segir þar einnig.
Elín vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað.
Verklok 1. október
Guðni segir að reynt verði að semja við verktaka í næstu viku og stefnt er á að þakið verði fullklárað þann 1. október.
Guðni segist lítið geta sagt til um það hvaða áhrif framkvæmdin muni hafa á starfsemi skólans. Allur gangur sé á því hversu nothæfar byggingar séu þegar ráðist er í slíkar framkvæmdir.
Hann segir að reynt verði að komast hjá því með öllum mögulegum ráðum að skerða þurfi þjónustu skólans.