Maður sem grunaður er um að hafa komist yfir 155 milljónir króna með yfirdráttarlánum keypti sér bíl og fór úr landi áður en upp um hann komst. Hann var síðar handtekinn erlendis og framseldur til Íslands.
Maðurinn rak fyrirtæki hér á landi og sótti í þrígang um yfirdrátt hjá banka sínum. Honum var hafnað í öll skiptin vegna bágrar fjárhagsstöðu fyrirtækisins.
Fékk 155 milljónir út á fimm milljóna króna heimild
Síðar fékk maðurinn þó samþykkta yfirdráttarheimild fyrir fyrirtækið upp á 1,5 milljónir gegn því að hann gengist í sjálfskuldarábyrgð. Sú heimild var hækkuð í þrjár milljónir og síðan fimm milljónir.
Maðurinn lét sér þó ekki nægja að taka yfirdrátt upp á fimm milljónir króna heldur fékk sífellt samþykktan nýjan yfirdrátt sem var á endanum kominn í 155 milljónir króna. Þetta varð til þess að bankinn kærði manninn til lögreglu.
Lögregla telur að maðurinn hafi í samskiptum sínum við sjálfvirkt afgreiðslukerfi bankans uppgötvað veikleika eða tæknilegan galla í kerfinu sem gerði honum kleift að taka sífellt hærri yfirdrátt.
Keypti bíl og fór úr landi
Við rannsókn lögreglu kom í ljós að maðurinn millifærði peningana inn á sína persónulegu bankareikninga annars staðar. Féð notaði hann meðal annars til að kaupa sér bíl fyrir 14,5 milljónir króna. Bílinn lét hann flytja úr landi með Norrænu og hélt sjálfur af landi brott.
Þetta gerðist í apríl en í maí var búið að finna manninn erlendis og flytja hann aftur til Íslands á grundvelli framsalsbeiðni. Hann sagðist hafa ætlað að stofna bifreiðaverkstæði erlendis en kvaðst ekki muna hví hann hefði flutt féð af reikningum gamla fyrirtækisins yfir á sína eigin.
Maðurinn var í júlí dæmdur í gæsluvarðhald til 2. október. Þá var búið að hafa uppi á bílnum og hluta fjármunanna en unnið var að því að leggja hald á það fé sem út af stóð.