Herdís Magna Gunnarsdóttir, kúabóndi á Egilsstöðum, telur mögulegt að hægt væri að fá undanþágu fyrir íslenskan landbúnað ef til aðildarviðræðna við Evrópusambandið kæmi, til að mynda fyrir bann við innflutningi á lifandi dýrum.
Þrátt fyrir það telur hún landbúnaði á Íslandi best borgið utan Evrópusambandsins.
„Það kerfi er hannað að meginlandslandbúnaði þar sem aðstæður eru allt aðrar en á Íslandi. Við erum með kerfi hér sem er hannað fyrir íslenskar aðstæður og við getum breytt því og sannarlega getum skoðað það að breyta því enn betur. Við getum tekið það sem er gott úr ESB og tekið það inn í okkar kerfi en ég tel ekki þörf á því að við göngum inn í Evrópusambandið til að gera það,“ segir Herdís.
Rætt við fólk sem hyggst kjósa nei
Herdís ætlar að kjósa nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardag eins og aðrir viðmælendur Kastljóss í kvöld. Rætt er við Herdísi Mögnu, Halldór Benjamín Þorbergsson, Styrmi Jökul Einarsson, Gunnlaug Eiríksson og Ernu Bjarnadóttur í Kastljósi – sem öll eiga það sameiginlegt að leggjast gegn því að Ísland hefji aðildarviðræður við ESB að nýju.
Að auki er rætt við Þórodd Bjarnason, prófessor í félagsfræði og sérfræðing í byggðaþróun. Hann tekur ekki afstöðu til þjóðaratkvæðagreiðslunnar en segir margt velta á því hvernig samningaferlið gangi fyrir sig ef af því verður.
Einnig verður rætt við Þórodd í Kastljósi á morgun, þar sem flestir viðmælendur gera grein fyrir því hvers vegna þeir ætli að kjósa já.