Flaggskip konunglega breska sjóhersins, flugmóðurskipið HMS Prince of Wales, liggur nú við bryggju að Grundartanga í Hvalfirði.
Er þetta í annað sinn sem skipið heimsækir Ísland en það er jafnframt stærsta skip breska flotans og stærsta herskip sem hingað hefur komið.
Skipið hefur að undanförnu tekið þátt í æfingum Atlantshafsbandalagsins (NATO) á Norður-Atlantshafi og sömuleiðis sinnt loftrýmisgæslu við Ísland, en það er í fyrsta sinn sem loftrýmisgæslu er sinnt af flugmóðurskipi.
Krúnudjásn flotans
Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum þá er skipið engin smásmíði en það er um 280 metrar á lengd og 70 metrar á breidd og 15 hæðir.
Áhöfn skipsins telur um 1.500 manns og er pláss fyrir í mesta lagi 37 orrustuþotur af gerð F-35B á flugbraut skipsins.
Skipið er nú einnig búið Merlin og Wildcat herþyrlum sem iðulega eru notaðar til að leita að kafbátum.













