Lögreglan í Fjallabyggð hafði afskipti af manni í Vesturgötu á Ólafsfirði fyrr í kvöld. Nágranni mannsins hafði samband við lögreglu eftir að maðurinn hafði verið útivið gólandi og sveiflað skotvopni. Skotvopnið reyndist vera leikfangabyssa. Ekkert bendir til að sérsveit hafi tekið þátt í aðgerðinni en DV hefur ekki náð sambandi við lögregluna í Fjallabyggð vegna málsins. Maðurinn sem um ræðir býr í húsi móður sinnar en hann hefur komið við sögu í fréttum áður vegna afbrota og hefur hann rætt við DV um sín málefni.
Lögregluaðgerð á Ólafsfirði – Höfðu afskipti af þekktum brotamanni sem býr í húsi móður sinnar