Vestrænar leyniþjónustur hafa varað við því um nokkurt skeið að Rússar ætli sér mögulega að senda gervihnött sem kallast Sputnik S á braut um jörðu og að hann eigi að bera kjarnorkusprengju. Geimskotið gæti mögulega átt sér stað í næsta mánuði.
Sprenging kjarnorkusprengju á sporbraut gæti grandað fjölmörgum gervihnöttum og haft gífurlega miklar afleiðingar á jörðu niðri.
Sjá einnig: Ætla að senda kjarnorkusprengju á sporbraut
Þorgerður segir þetta mikið áhyggjumál.
„Um leið vil ég lýsa yfir vonbrigðum með að við skulum ekki vera með skýra kjarnorkuafvopnunaráætlun í gangi. Fyrir Ísland, sem er friðelskandi þjóð, er meira en bagalegt að sjá stórveldin ekki hafa löngun eða vilja til þess að setjast niður og reyna að takmarka sína kjarnorkuvopnagetu.“
Þorgerður segir að hún hefði viljað sjá þessi mál rædd ítarlega á fundi Donalds Trump, Vladimírs Pútín og Xi Jinping í Kína á dögunum. Evrópa þyrfti einnig að koma þar að og það þyrfti að taka málefni kjarnorkuvopna föstum tökum.
„Afstaða Íslands er skýr. Við viljum kjarnorkuvopnaáætlun sem virkar og við viljum að stórveldi gyrði sig í brók hvað þetta varðar.“
Ekki nýjar fréttir en enn sláandi
Mark Rutte, framkvæmdastjóri NATO, segir að bandalagið muni verjast ógnum í geimnum. Þetta sagði hann þegar hann var spurður út í fregnirnar af áðurnefndum gervihnetti, samkvæmt frétt BBC.
„Við munum alltaf verja hverja tommu af landsvæði NATO og það felur einnig í sér að verjast ógnum úr geimnum,“ sagði Rutte á blaðamannafundi með Friedrich Merz, kanslara Þýskalands.
Merz sagði þessar fregnir ekki nýjar en þær væru ekkert minna sláandi fyrir það. Talsmaður hans sagði að þær væru teknar mjög alvarlega.
Dmitrí Peskóv, talsmaður Vladimírs Pútín, sagði við rússneska blaðamenn að ekki væri hægt að taka þessar fregnir alvarlega. Um áróðursherferð gegn Rússlandi væri að ræða.