„Í rauninni er þetta bara skemmdarverk,“ segir Birna Mjöll Atladóttir, eigandi Hótel Breiðavíkur við Látrabjarg á Vestfjörðum, eftir að þrír fjölmennir ferðamannahópar afbókuðu ríflega 75 gistipláss yfir þá daga sem almyrkvi sólar gengur yfir í miðjum ágúst.
Sólmyrkvinn 12. ágúst verður almyrkvi á sólu sem gengur yfir Norðurslóðir, austanvert Grænland, Ísland, Atlantshaf og Spán. Við Látrabjarg er almyrkvinn lengstur frá Íslandi en hans má þar njóta í heilar 2 mínútur og 13 sekúndur. Af því tilefni er búist við að margir leggi leið sína vestur.
Bókuðu fyrir einu og hálfu ári síðan
„Ég þekkti til einnar skrifstofunnar en hinar tvær þekkti ég ekki. Þeir halda bókununum í eitt og hálft ár. Svo þegar ég fer loksins fram á staðfestingargjald þá afbóka þeir allir á sama tíma, nema einn sem borgaði staðfestingargjaldið en afbókaði svo daginn eftir,“ segir Birna í samtali við mbl.is.
Aðspurð segir hún hótelið verða fyrir nokkuð miklu fjárhagslegu tjóni ef ekki tekst að fylla plássin fyrir almyrkvann. „Ég er meira að segja búin að lækka verðin í þeirri von að það komi bókanir en tíminn verður að leiða það í ljós.“
Vísir greindi fyrst frá.
Áfall í kjölfar netsvika
Þetta áfall kemur í kjölfar annars en fyrr á árinu varð Birna fyrir því að netsvikarar nýttu sér mikinn áhuga á almyrkvanum til að svíkja fé af ferðamönnum sem leituðu að gistingu. Þeir auglýstu herbergi á Hótel Breiðavík og fengu gesti til að greiða fyrir gistinguna í gegnum greiðsluþjónustuna PayPal.
„Þeir náðu að fara inn á tölvuna mína og svara þeim póstum sem ég sagði að væri fullbókað og segja við fólkið að það hefði losnað herbergi og létu fólk borga. Það kom til dæmis til mín maður núna um daginn sem var með kvittun um að hann væri búinn að borga þrjár nætur á hótelinu og ég þurfti bara að segja honum að þetta væri ekki frá mér,“ segir Birna.
Að sögn Birnu er málið til rannsóknar hjá lögreglu. „Það eina sem þeir sögðu mér var að þetta væri með stærri svona málum sem þeir höfðu séð.“
Þrátt fyrir allt ber Birna höfuðið hátt. „Það var rosa kjaftshögg að lenda í þessu. En við ætlum ekkert að velta okkur upp úr þessu. Við þurfum bara að halda andliti og vinna úr því sem við höfum,“ segir Birna og bætir við: „Ég hef tekið þá afstöðu í lífinu að ergja mig ekki af því sem ég get ekki breytt.“