„Það var nú fyrst og fremst vegna þess að það voru mjög margir umsagnaraðilar sem gerðu athugasemd við það um að börn væru vistuð í brottfararstöð,“ segir Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar sem situr í allsherjar- og menntamálanefnd.
Hann segir að nefndin hafi haft samband við dómsmálaráðuneytið, sem sé oft gert, og ráðuneytið hafi lagt fram tillöguna um að börn yrðu ekki vistuð í stöðinni.
„Komi til þess að það þurfi að vista fjölskyldur sé það gert utan hinnar hefðbundnu brottfararstöðvar. Vistun í brottfararstöð er síðasta úrræðið,“ segir Grímur.
Það sé útfærsluatriði hvort barna- og fjölskylduúrræðið verði nálægt hinni eiginlegu brottfararstöð en engar reglur verði settar um nálægð þess. Í nefndarálitinu, sem enn eigi eftir að birta, verði fleiri breytingar en sú sem varði börnin sé sú stærsta.
„Við erum búin að vera að vinna mikið í þessu máli. Það er verið að vinna í nefndaráliti,“ segir Grímur.