Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi í uppsveitum Árnessýslu þann 4.júlí, lést fimmtudaginn 9. júlí á gjörgæslu Landsspítalans. Konan ásamt karlmanni á áttræðisaldri fundust í tjaldi í Biskupstungum á Suðurlandi um hádegisbil laugardaginn 4. júlí. Karlmaðurinn var látinn þegar að var komið, en konan var flutt þungt haldin á gjörgæsludeild. Sjá einnig: Fannst látinn í Biskupstungum
Konan sem fannst í Biskupstungum er látin