Skipverjar á björgunarskipinu Björgu á Snæfellsnesi stóðu í ströngu í gær þar sem þeir þurftu tvisvar að fara út til aðstoðar skipum sem höfðu fengið veiðarfæri í skrúfuna.
Skipið var kallað út með mesta forgangi í hádeginu í gær þegar Ólafur Bjarnason frá Ólafsvík fékk veiðarfæri í skrúfuna undan Búlandshöfða og rak hægt að landi. Skipið var eina og hálfa sjómílu frá landi þegar Björg var kölluð út. Þá var óttast að skipið kynni að stranda.
Björg var lögð af stað út úr höfninni sjö mínútum eftir útkall og stímdi á fullu í átt að Búlandshöfða. Þegar að Ólafi Bjarnasyni var komið 20 mínútum síðar var hann aðeins 0,7 sjómílur frá landi. Taug var komið í Ólaf Bjarnason og hann dreginn í höfn í Ólafsvík.
Ekki gafst löng hvíld eftir þetta því upp úr klukkan ellefu í gærkvöld barst hjálparbeiðni frá skipi sem hafði fengið veiðarfæri í skrúfuna úti á Breiðafirði. Þar var ekki jafn mikil hætta á ferðum og því ekki hæsti forgangur. Björg sigldi þó að skipinu og þeim fjórum skipverjum sem voru um borð. Klukkutíma eftir útkall var björgunarskipið komið að fiskiskipinu og var taug þá komið á milli þeirra. Björg sigldi svo inn höfnina í Ólafsvík með skipið um klukkan fjögur í nótt.
Ekki er langt síðan reyndi á þörfina fyrir björgunarskipið því það dró skip í land á föstudag eftir að það varð aflvana.