Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra segir sögusagnir af áfengisneyslu hennar og meintri áfengismeðferð stórlega ýktar.
Þetta kemur fram í myndskeiði sem hún birti í beinni útsendingu á samfélagsmiðlum að loknum ríkisstjórnarfundi í dag. Þar sagðist hún hafa verið spurð af fréttamanni hvort hún hefði nýlega komið úr áfengismeðferð en Inga fór í veikindaleyfi frá störfum á dögunum.
„Það verð ég líka að segja varðandi fréttir af minni drykkju, fréttir af minni meðferð eru meira en stórlega ýktar. Ég hef aldrei á ævinni farið í meðferð og notið þeirra sérréttinda sem felast í því að fara í þá innri endurskoðun á sjálfum sér eins og þar fer fram. Það dásamlega starf sem þar er unnið,“ sagði Inga.
„Ég er svo blessunarlega heppin að hafa ekki þurft að glíma við þennan erfiða sjúkdóm sem alkóhólismi er.“
Lýgur meira en mígur
Þá sagðist Ingu ekki detta í hug hver myndi „rúlla“ svona sögusögnum af stað en að „fólk lýgur meira en það mígur stundum“.
Þá sagðist hún hafa verið með virkilega slæma flensu á dögunum og að hún hefði verið mjög veik í tvær vikur.
„En halló, ég skal bara lofa því að segja ykkur það þegar Bakkus hefur náð þannig tökum á mér að ég þurfi að leita aðstoðar,“ sagði Inga að lokum og bætti við að ráðherrar fái fá tækifæri til að lyfta glösum.