Við rýnum í tölurnar með stjórnmálafræðingnum Gunnari Sigurðarsyni sem verður fréttastofunni til halds og trausts í kosningasjónvarpi annað kvöld.
Þá tökum við stöðuna á utankjörfundaratkvæðagreiðslunni en þar er kjörsókn mun betri en var fyrir síðustu sveitarstjórnakosningar.
Að auki segjum við frá nýrri skýrslu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um notkun nikótínpúða og heyrum í fulltrúa Landlæknis.
Í íþróttunum fjöllum við um körfuboltaleikinn í kvöld þar sem Grindavík getur tryggt sér sigur á heimavelli.