Hótelstjóri Hótels Djúpavíkur hefur fengið sig fullsaddan af því sem hann telur sinnuleysi af hálfu Vegagerðarinnar gagnvart vegum Árneshrepps á Ströndum.
Hótelstjórinn, Magnús Karl Pétursson, segist nær daglega þurfa að veita gestum hótelsins eins konar áfallahjálp eftir að þeir hafa ekið eftir malarveginum sem liggur að hótelinu.
Djúpavík er eitt af tveimur þorpum Árneshrepps, ásamt Norðurfirði, en um 80 kílómetra langur malarvegur liggur um sveitarfélagið, sem er það næstfámennasta á landinu.
Dekkjaviðgerðir nær daglegt brauð
Segir Magnús slæmar aðstæður á malarveginum hamla starfsemi hótelsins.
„Færst hefur í aukana að við á hótelinu fáum afbókanir vegna þess að útlendingar og Íslendingar treysta sér ekki til að keyra til okkar og þurfum við nánast á hverjum degi síðan við opnuðum hótelið í byrjun maí að veita gestum okkar „áfallahjálp“ eftir að hafa keyrt hingað“
Að sögn Magnúsar fékk Vegagerðin verktaka til að vinna efni til að bera á veginn fyrir nokkrum árum. Hann segir efnið aftur á móti hafa staðið óhreyft síðan. Nú sé til að mynda farinn að vaxa gróður á efnishólunum sem eru á víð og dreif um Árneshrepp.
„Í fyrrasumar, eftir að íbúar hreppsins höfðu kvartað sáran yfir veginum og dekkjaviðgerðir voru nánast daglegt brauð, fékk Vegagerðin á Hólmavík „budget“ fyrir 7 km ofaníburði á veginn. Þannig að þeir nánast handvöldu holurnar sem varð að fylla í.“
Hreppurinn blæðir og missir af tekjum
Þrátt fyrir að efnið sem um ræðir sé á staðnum og þegar hafi verið greitt fyrir vinnslu þess segir Magnús að það sé ekki hægt að nota efnið, þar sem efnið sé ekki í eigu umdæmis Vegagerðarinnar á Hólmavík heldur tilheyri það umdæminu í Borgarnesi.
„Þetta efni mun aldrei vera notað neins staðar annars staðar nema hér í Árneshreppi og í Kaldrananeshreppi. Þetta er náttúrlega allt sama batteríið og er bara verið að færa peninga á milli skúffna. Á meðan þetta rugl er í gangi blæðir hreppnum og hann missir af miklum tekjum,“ segir hótelstjórinn.
Eina framlag Vegagerðarinnar þetta vorið hafi verið að setja sjö tonna hámarksöxulþunga á veginn.
„Sem kom auðvitað í veg fyrir að strandveiðimenn gætu landað í Norðurfirði þar sem ekki var hægt að láta sækja fiskinn. Nú er búið að opna veginn fyrir þyngri bíla en ekkert gert fyrir veginn.“

