Um fjörutíu hefur verið sagt upp störfum í hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi vegna skipulagsbreytinga á alþjóðavísu þar sem starfsmönnum er skipt út fyrir gervigreind. Frá þessu greinir Vísir sem hefur undir höndum bréf sem forstjóri Rapyd, Arik Shtilman, sendi til starfsmanna en þar eru uppsagnirnar raktar til innleiðingar á gervigreind. Garðar Stefánsson, forstjóri Rapyd á Íslandi, segir að „samhliða alþjóðlegum framförum í gervigreind og sjálfvirknivæðingu“ verði Rapyd áfram skuldbundið íslenska markaðnum, en hér starfa rúmlega 120 aðilar fyrir fyrirtækið.
Fyrr í dag var greint frá uppsögnum hjá Bláa lóninu þar sem 29 stöðugildi verða lögð niður og 55 starfsmenn fluttir milli sviða.