Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis, hefur verið skipaður í nýja stöðu innan móðurfyrirtækisins Coloplast.
Coloplast keypti Kerecis árið 2023 á 175 milljarða króna. Guðmundur Fertram tók þá við stöðu aðstoðarforstjóra sárameðferðar hjá Coloplast ásamt því að vera forstjóri Kerecis. Nú hefur hann verið færður til í starfi innan Coloplast og hefur tekið við hlutverki sérstaks ráðgjafa Gavins Woods, forstjóra fyrirtækisins.
Í tilkynningu Coloplast segir að Guðmundur Fertram muni í nýju hlutverki leggja áherslu á nýsköpun, þróaða sárameðferð og nýja tækni.
„Ég er jafn ástríðufullur fyrir heilbrigðistækni, sárameðferð og nýsköpun og ég hef nokkurn tímann verið. Ég er fullur tilhlökkunar yfir að taka við þessu nýja hlutverki og nýta reynslu mína og frumkvöðlasjónarhorn í að þróa næstu kynslóð tækni og lausna í sárameðferð,“ er haft eftir Guðmundi Fertram í tilkynningunni.