Á kaffihúsinu voru viðskiptavinir og starfsmenn sem hringdu á sjúkrabíl að beiðni mannsins. Að sögn eins viðskiptavinar var maðurinn talsvert vankaður og vildi ekkert segja annað en að hann hefði hlotið skotsár á hendi.
Skömmu síðar kom lögregla á staðinn. Hlúð var að manninum í sjúkrabíl fyrir utan og hann var í kjölfarið fluttur burt, eflaust á sjúkrahús til frekari aðhlynningar.
Í sömu götu, að Hafnarbraut 12, stóð yfir umfangsmikil sérsveitaraðgerð á um það bil sama tíma. Búið er að girða af svæði í kringum bygginguna og lögreglumenn eru þar enn að störfum.
Íbúar á stigaganginum sem aðgerðin snýr að lýsa því einnig að hafa séð blóð á veggjum. Maður á miðjum aldri var leiddur út í handjárnum.