Áform Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, um að skipta bókstöfum út fyrir tölustafi í námsmati aðalnámskrár voru birt í samráðsgátt í vikunni. Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segir að ekki sé hægt að reikna með að breytingin taki stuttan tíma og að hana þurfi að undirbúa vel.
„Með breytingunni er stefnt að því að gera námsmat skýrara og auðskiljanlegra fyrir nemendur og foreldra, án þess að draga úr faglegu hlutverki kennara eða mikilvægi fjölbreyttra matsaðferða í skólastarfi líkt og núgildandi aðalnámskrá kveður á um,“ segir um málið í samráðsgátt stjórnvalda.
Námsmat verði að styðja við námskrá
Magnús Þór segir það ekki lykilatriði hvort einkunnir séu gefnar í tölu- eða bókstöfum heldur að þær gagnist börnum.
„Námsmat er svolítið eins og útgerðarmaður sem vigtar. Hvort ég vigta í kílóum eða pundum verður ekki lykilatriði í skólastarfi en námsmat verður að vera hluti af því að styðja við námskrána,“ segir hann.
Eitt og sér er námsmat ekki kjarni þess sem skólinn gengur út á. „Tölustafir verða að enduróma það sem fer fram í kennslustofunni,“ segir hann.
Leggjast ekki gegn einkunnum í tölustöfum
Ráðherra tilkynnti á þingi Kennarasambandsins í apríl að það ætti að breyta námsmati í grunnskólum. Það vakti hörð viðbrögð og kennarar sökuðu stjórnvöld um samráðsleysi.
Magnús segir að kennarar leggist ekki gegn einkunnum í tölustöfum. Samtöl við kennara hafi ekki farið nægilega vel af stað en ráðuneytið hafi fullvissað þá um að raddir þeirra og sambandsins yrðu virkar í vinnunni fram undan.
„Við erum að undirbúa okkur undir það að koma með okkar sýn á það hvernig er best hægt að koma til móts við það að námsmatsbreyting myndi þjóna börnunum í skólunum. Það er verkefnið fram undan. Við erum alltaf til í öll samtöl sem geta leitt til góðs.“