Tenging á milli kerfa ákveðins rekstraraðila apóteka við kerfi Sjúkratrygginga Íslands rofnaði um helgina með þeim afleiðingum að ekki var hægt að leysa út lyf hjá ákveðnum apótekum.
Varaleiðir, sem eiga að vera til staðar til að tryggja áframhaldandi þjónustu við bilun, virkuðu ekki sem skyldi.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, annar framkvæmdastjóra Sjúkratrygginga Íslands, sagði í svari sínu við fyrirspurn mbl.is um málið að búið væri að leysa vandann og áfram væri unnið að því að greina atvikið og þá sérstaklega ástæður þess að varaleiðir brugðust.
Hún áréttar að rekstraröryggi upplýsingakerfa Sjúkratrygginga Íslands sé mjög hátt og að atvik af þessu tagi heyri sem betur fer til undantekninga.