Hjólreiðamaður var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild eftir að ekið var á hann á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar í morgun. Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir þetta.
Slökkviliði barst tilkynning um að ekið hefði verið á hjólreiðamann klukkan 09:29. Í kjölfarið var einn sjúkrabíll sendur á vettvang. Lárus segir störfum slökkviliðsins á vettvangi slyssins lokið.
Árni Friðleifsson, aðalvarðstjóri hjá umferðardeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir útlit fyrir að ökumaður bílsins hafi ekki virt rétt hjólreiðamannsins á gatnamótunum. Hann var á bílaleigubíl. Ekki leikur grunur á um að ökumaðurinn hafi verið undir áhrifum.
Þá segir Árni að slysið virðist í fyrstu ekki alvarlegt. Ekki hafi verið óskað eftir fjölmennu liði lögreglu og útkallið verið í svokölluðu F-3, eða litlum forgangi.
Fréttin hefur verið uppfærð með vísunum í Árna Friðleifsson.