Það urðu miklir fagnaðarfundir þegar fjölskylda hins tveggja ára Lucasar endurheimti hann eftir að hann hafði verið týndur í fimmtán klukkustundir í gær. Lucas var heill á húfi, en var orðinn kaldur og blautur þegar hann fannst.
Afi drengsins, Neculai Toader, segir í samtali við SVT að klukkustundirnar á meðan Lucas var týndur hafi verið hræðilegar, en gleðin hafi verið ólýsanleg þegar hann fannst.
„Ég hef aldrei fundið fyrir slíkum sársauka í hjartanu. Ég grét allan daginn,“ segir Toader.
Lucas og fjölskylda hans eru frá Rúmeníu, en hafa verið í Svíþjóð í um þrjár vikur og búa í húsi í Nyåker í Nordmaling. Lucas hvarf, að því er virtist sporlaust, frá heimili þeirra um klukkan tíu í gærmorgun, að sænskum tíma.
Hann hafði verið að leika sér með bíla og borða velling, en var skyndilega horfinn. Amma hans hélt að hann væri hjá móður sinni, og öfugt.
Mikil leit hófst með aðkomu lögreglu, hersins, fjallabjörgunarsveita, slökkviliðs, sjálfboðaliða og Missing People. Leitað var með hundum, drónum og þyrlu.
Eftir fimmtán klukkustundir, eða um klukkan eitt eftir miðnætti, fann hermaður úr heimavarnarliðinu drenginn úti í mýri og var hann orðinn kaldur og blautur. Hann var í kjölfarið fluttur á sjúkrahúsið í Umeå til skoðunar, en er sagður brattur og líður vel, þrátt fyrir langan og erfiðan dag í gær.
„Ég var ekki viss hvort þetta væri satt eða ekki. Við urðum ofboðslega glöð. Ég sagði bara takk, guð minn góður,“ segir afi Lucasar.