Drónanum sem orrustuþotur skutu niður í Lettlandi á föstudaginn var flogið inn í lettneskt loftrými frá Belarús. Varnarmálaráðherra Lettlands, Raivis Melnis, greindi frá þessu í viðtali í lettneska ríkissjónvarpinu í gær.
Brak drónans fannst í Balvi-héraði í norðausturhluta Lettlands og sérfræðingar vinna nú að því að greina uppruna hans. Talið er líklegt að dróninn sé úkraínskur og Rússar hafi truflað flug hans og sent hann af leið.
Melnis segir að drónar sem er flogið inn í lettneskt loftrými verði skotnir niður enda sé það öryggismál fyrir íbúa og eignir þeirra.