Ákvörðun Bandaríkjaforseta að draga úr sameiginlegum heræfingum með Suður-Kóreu grefur undan áratuga sambandi ríkjanna tveggja. Bandarískur öldungadeildarþingmaður segir þetta áróðurssigur fyrir Norður-Kóreu. Bandaríkjaher segir Norður-Kóreu hafa prófað langdrægar skotflaugar sem geta ferðast milli heimsálfa og borið kjarnavopn með góðum árangri.
Vill fulla stjórn yfir suður-kóreska hernum
Bandaríkjamenn hafa haldið sameiginlegar heræfingar með Suður-Kóreumönnum síðan á sjötta áratug síðustu aldar. Markmiðið er fælingarmáttur gegn árásarhneigð Norður-Kóreu og sjáanlegur viðbúnaður bandamanna.
Lee Jae Myung, forseti Suður-Kóreu, vill auka sjálfstæði hers landsins og fá aftur fulla stjórn yfir honum frá Bandaríkjunum, komi til stríðs. Hann hvetur einnig til þess að ríkið eignist kjarnorkuknúna kafbáta. Þetta sagði hann í dag eftir að Bandaríkjaforseti fyrirskipaði að minnka umfang sameiginlegrar heræfingar.
Lee og ríkisstjórn hans hafa lengi verið með þetta á stefnuskránni. Krafan á rætur sínar að rekja til Kóreustríðsins á sjötta áratugnum. Það endaði með vopnahléi en ekki endanlegu friðarsamkomulagi árið 1953.
Ríkin tvö, Norður- og Suður-Kórea, eru því tæknilega séð enn í stríði.
Bandaríkjaher hefur verið með viðveru í Suður-Kóreu síðan þá og þar er meðal annars stærsta herstöð Bandaríkjahers utan heimalandsins, Camp Humphreys. Herir ríkjanna tveggja æfa og starfa náið saman, þar á meðal með þessum árlegu heræfingum eins og er í gangi núna.
Stríðstímastjórnin, Wartime Opcon, sem hefur það vald að geta stjórnað suðurkóreska hernum hefjist bardagar á ný, hefur verið í höndum Bandaríkjahers frá upphafi Kóreustríðsins.
Suður-Kóreumenn endurheimtu stjórn á eigin her á friðartímum 1994 og síðan þá hefur verið eitt helsta öryggismarkmið stjórnvalda að endurheimta fulla stjórn á hernum.
Lee segir sterkt hernaðarbandalag styrkja grunn öryggisins. „Að styrkja okkar eigin getu eykur gildi okkar og nauðsyn sem bandamanns,“ sagði Lee á ríkisstjórnarfundi. Hann vildi einnig flýta kafbátaáætlun landsins og því að ríkið fengið kjarnorkuknúna kafbáta.
Gagnrýna ákvörðun Trumps harðlega
Þingmenn í báðum flokkum á Bandaríkjaþingi gagnrýndu ákvörðunina í gær og vöruðu við því að hún myndi gagnast Norður-Kóreu á sama tíma og hún setti einn nánasta bandamann Bandaríkjanna í Asíu úr jafnvægi.
Jack Reed, æðsti þingmaður Demókrata í varnarmálanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings, sagði ákvörðunina fáránlega og tilviljunarkennda.
„Þegar Trump forseti skerðir heræfingar til að smjaðra fyrir einræðisherra eða refsar Suður-Kóreu fyrir að neita að taka þátt í stríði sem hann hóf sjálfur, þá halda allir bandamenn okkar - og andstæðingar - að skuldbindingar Bandaríkjanna séu umsemjanlegar.“
Thom Tillis, þingmaður Repúblikana í öldungadeildinni, hefur áður gagnrýnt Trump. Hann benti á að Suður-Kórea hafi verið traustur hernaðarbandamaður Bandaríkjanna í meira en 70 ár og búi yfir einstakri hernaðargetu.
„Að fækka sameiginlegum heræfingum með Suður-Kóreu gerir ekkert annað en að frelsa þúsundir hermanna Norður-Kóreu til að fara og styðja kerfisbundin mannrán, pyntingar, morð og nauðganir Pútíns á saklausum borgurum í Úkraínu.“
Norður-Kórea hefur sent þúsundir hermanna til Rússlands til að berjast í stríði þess gegn Úkraínu.
Reed sagði enn fremur að ákvörðun Trumps væri áróðurssigur fyrir Norður-Kóreu og að Suður-Kóreu væri refsað að ástæðulausu, nema vegna egós forsetans.
„Kínverjar og Rússar fylgjast með því hversu auðveldlega þessi forseti yfirgefur bandamenn Bandaríkjanna og þeir muna það næst þegar þeir prófa okkur.“
Prófuðu langdrægar eldflaugar sem drífa á milli heimsálfa
Reed bendir einnig á að ákvörðun Trumps stangist á við nýlega viðvörun frá undirhershöfðingja Bandaríkjahers. Norður-Kóreumenn prófuðu nýlega langdrægar eldflaugar, sem drífa á milli heimsálfa, með góðum árangri.
Joseph Jarrard undirhershöfðingi sagði þær hafa nægan kraft til að bera kjarnorkuvopn hvert sem er í Norður-Ameríku.
Öldungadeildarþingmaðurinn Mark Kelly situr einnig í varnarmálanefndinni. Hann er einnig fyrrverandi geimfari og sjóliðsforingi. Hann sagði heræfingarnar ekki vera táknrænar heldur grundvöll að getu bandalagsins til að bregðast við hættuástandi.
„Norður-Kórea og Suður-Kórea eru tæknilega séð enn í stríði. Geta okkar til að vernda bandamenn okkar gegn Norður-Kóreumönnum grundvallast á því að hermenn okkar séu vel þjálfaðir og geti samræmt sig með Suður-Kóreumönnum. Að draga úr umfangi þessara sameiginlegu heræfinga er skammsýni og mistök.“
Emma Chanlett-Avery, aðstoðarforstjóri Asia Society Policy-stofnunarinnar, benti á það í gær að lýsing Trumps á Norður-Kóreu sem virðingarfullu ríki, sem stafi ekki ógn af, veki upp ógn hjá bandamönnum sem hafi horft upp á stjórnvöld þar bæta stöðugt eldflauga- og kjarnorkuvopnagetu sína en jafnframt eignast mikilvægan bandamann og verndara í Rússlandi vegna stuðnings Norður-Kóreu í stríðinu gegn Úkraínu.