„Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ - Vísir

„Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ - Vísir

„Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ - Vísir

Niðurstöður kosninganna gefa bara augljósa kosti á meirihlutamyndun Sjálfstæðisflokksins með völdum flokkum. Helst hefur verið talað um mögulegan meirihluta flokksins með Miðflokki annars vegar og með Viðreisn og Framsóknarflokki hins vegar. 

Samkvæmt könnun Maskínu fyrir kosningar vilja langflestir kjósenda Miðflokksins starfa með Sjálfstæðisflokknum. Tæplega helmingur kjósenda Sjálfstæðisflokksins var spenntastur fyrir Miðflokknum en fjórðungur nefndi helst Framsókn eða Viðreisn.

Töluvert fleiri Sjálfstæðismenn vilja samstarf við Miðflokkinn en Framsókn og Viðreisn miðað við könnun Maskínu í maí.

Einhver myndi segja könnunina gefa Hildi hinn augljósa fyrsta kost. En af hverju er hún ekki byrjuð í tveggja flokka meirihlutaviðræðum við Miðflokkinn?

Endurnýjunin virkaði

Hildur Björnsdóttir er reynslumikil stjórnmálakona eftir átta ár í minnihluta í borgarstjórn, átta ár sem einkenndust af nokkrum vandræðagangi í liði hennar. Flokkurinn fékk rúm 30 prósent í kosningunum fyrir átta árum og fjórum árum síðar var fylgið komið niður í 25 prósent. 

Borgarfulltrúar flokksins stóðu sjaldnast saman, tókust stundum bókstaflega á um stóla og voru dæmi um að hann klofnaði í þrennt þegar greidd voru atkvæði í borgarstjórn.

Sjálfstæðisflokkurinn, sem er sögulega stærsti stjórnmálaflokkur landsins og réði ríkjum í borginni til ársins 1994, réðst í hreinsanir í aðdraganda kosninganna. Sársaukafullar hreinsanir sem fólu meðal annars í sér að vísa þaulreyndum borgarfulltrúum frá borði, þeim Kjartani Magnússyni og Mörtu Guðjónsdóttur sem færðu sig yfir í Miðflokkinn. Hið sama gerði Helgi Áss Grétarsson. Öll þrjú hafa skotið föstum skotum á Sjálfstæðisflokkinn undanfarnar vikur svo eftir hefur verið tekið.

Spilunum var stokkað upp og ný andlit fengin á lista sem ýmist höfðu aldrei verið við pólitík kennd, eins og í tilfelli íþróttakappanna Bjarna Guðjónssonar og Bjarna Fritzsonar, eða reynslubolta af þinginu í tilfelli Brynjars Níelssonar. Endurnýjunin skilaði níu borgarfulltrúum og ómögulegt er að sjá nokkurn annan en Hildi verða nýjan borgarstjóra. Það virðist vilji borgarbúa miðað við könnun Maskínu í aðdraganda kosninga.

Björn Ingi á bak við tjöldin

Það er því kannski skiljanlegt að Hildur sé dálítið efins um að það sé rétta skrefið að stökkva í sæng með Miðflokknum augnablikum eftir að hafa losað sig við Miðflokksþenkjandi fólkið í eigin flokki sem hún átti ekki samleið með. Kjartan og Marta eru reyndar neðarlega á listanum, í tólfta og þrettánda sæti, en Helgi Áss er annar varaborgarfulltrúi.

Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns Miðflokksins, var samkvæmt heimildum Vísis í aðalhlutverki við myndun lista flokksins í borginni. Tók hann viðtöl við fólkið sem fór á listann áður en listinn hlaut blessun formanns flokksins.

Björn Ingi er þaulreyndur í íslenskri pólitík, hvort sem er sem pólitíkus, í vinnu á bak við tjöldin eða í fjölmiðlum, og var í eldlínunni í REI-málinu árið 2007 sem snerist um deilur í borgarstjórn um sölu og kaup á orkufyrirtækinu Reykjavík Energy Invest. Björn Ingi var borgarfulltrúi Framsóknarflokksins í meirihluta með Sjálfstæðisflokknum. Upprifjun á málinu myndi kalla á sérstaka fréttaskýringu en hér verður stiklað á stóru.

Að morgni 11. október 2007 var haldinn leynilegur fundur á heimili tengdaforeldra Björns Inga þangað sem mættu, auk hans, þau Dagur B. Eggertsson og Svandís Svavarsdóttir, oddvitar Samfylkingar og Vinstri grænna. Fyrir hönd Frjálslynda flokksins og óháðra mætti Ólafur F. Magnússon. Á sama tíma bólaði ekkert á Birni á fundi með Sjálfstæðismönnum sem hann hafði verið boðaður á í Höfða.

Áhyggjur Sjálfstæðismanna voru ekki ástæðulausar því Björn Ingi og hinir flokkarnir voru þá enn á fundi og sömdu um myndun nýs meirihluta. 

Sjálfstæðismenn náðu borginni reyndar aftur en fyrrnefnt baktjaldamakk Björns Inga er sumum Sjálfstæðismönnum geymt en ekki gleymt.

Þótt margir Sjálfstæðismenn vilji efna til samstarfs við Miðflokkinn eru margir efins um slíkt samstarf í ljósi sögunnar. Minnsti mögulegi meirihluti þarf að vera ansi samstíga og ríkja mikið traust til að hann geti náð málum sínum í gegn, breytingum sem lofaðar hafa verið í kosningabaráttu undanfarnar vikur og mánuði.

Sjálfstæðismenn litlir í sér?

Ari Edwald, oddviti Miðflokksins, hefur verið yfirvegaður í kosningabaráttunni og má telja ljóst að hann sé umtalsvert spenntari fyrir því að komast í meirihluta til að geta látið verkin tala en að vera í minnihluta. Á meðan Ari er yfirvegaður eins og oddvitar Framsóknar og Viðreisnar hafa verið undanfarna viku og lítið látið í sér heyra hefur annað verið uppi á teningnum hjá Birni Inga og Sigmundi Davíð.

Björn Ingi sagði í viðtali í Reykjavík síðdegis að Sjálfstæðismenn yrðu að hætta að vera litlir í sér í borginni. Sumir þeirra væru of hræddir við vókið svonefnda.

Þá sagðist Sigmundur Davíð á Sprengisandi á Bylgjunni heyra að hamast væri innan Sjálfstæðisflokksins til að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn kæmist að.

„En ég mun láta segja mér það þrisvar ef menn ætla að klúðra þessu sögulega tækifæri, af því að við erum búin að upplifa sextán ár af því sem virðist vera að verða eilífðarstjórn vinstri manna hér. Farið að líta á Reykjavík sem rauðu Reykjavík, hún væri orðin eins og höfuðborg í mörgum erlendum löndum þar sem vinstri menn smátt og smátt tóku völdin,“ sagði Sigmundur Davíð.

Já, Hildur hefur um ýmislegt að hugsa þegar kemur að samstarfi við Miðflokkinn.

Öll fjögur í Hannesarholti

Athygli vakti að Hildur byrjaði á því að funda með oddvitum allra flokka sem náðu manni inn í borgarstjórn. Í framhaldinu boðaði hún oddvita Miðflokksins, Viðreisnar og Framsóknar til sín á fund, ekki hvern í sínu lagi heldur alla saman í Hannesarholt á miðvikudag eftir kosningar. Þegar fulltrúarnir gengu af fundinum virtist öllu léttara yfir Ara Edwald og Einari Þorsteinssyni oddvita Framsóknar en Björgu Magnúsdóttur, brosmilda oddvita Viðreisnar, þótt varhugavert sé að lesa um of í svipbrigði oddvitanna á leið út af fundinum. 

Áhugasamir geta þó gert það með áhorfi á klippuna að neðan.

Samkvæmt heimildum fréttastofu eru margir innan Sjálfstæðisflokksins sem sjá í hyllingum þann kost að mynda meirihluta allra fjögurra flokkanna. Athygli vakti að Andrés Magnússon, ritstjórnarfulltrúi á Morgunblaðinu og innmúraður Sjálfstæðismaður - stundum nefndur spunameistari flokksins, minnti á þennan möguleika í mánudagsblaði Morgunblaðsins eftir kosningar. 

Andrés Magnússon ritstjórnarfulltrúi á Morgunblaðinu vakti strax athygli á mögulegum fjögurra flokka meirihluta sem fáir veltu á þeim tímapunkti fyrir sér eftir að oddviti Viðreisnar útilokaði samstarf með Miðflokki.Vísir/Vilhelm

Sá meirihluti væri ríkur, teldi 15 borgarfulltrúa, og í honum fælist ákveðið öryggisnet. Ef einn flokkurinn stykki frá borði, jafnvel tveir, þá þyrfti það ekki að þýða að meirihlutinn væri fallinn. 

Forsíðufrétt Morgunblaðsins á mánudegi eftir sveitarstjórnarkosningar.

Björn Ingi Hrafnsson er nefnilega ekki sá eini sem lætur til sín taka í meirihlutaviðræðum sem hefur reynslu af slíku heldur er flestum í fersku minni þegar Einar Þorsteinsson sleit borgarstjórnarmeirihluta í síðustu kosningum en tókst svo ekki að mynda nýjan eins og hann hafði séð fyrir sér. 

Telja má fullvíst að Einar sé tilbúinn í hvern þann meirihluta sem flokknum býðst enda í kjörstöðu sem miðjuflokkur. Þótt Einar hafi í kappræðum sagst forðast samstarf við Miðflokkinn þá útilokaði hann það ekki. Þá má ekki gleyma því að í grunninn er Einar Sjálfstæðismaður, var öflugur í ungliðastarfi flokksins og gegndi formennsku hjá ungum Sjálfstæðismönnum í Kópavogi, þótt hann hafi stokkið á tækifærið til að gerast oddviti Framsóknar í borginni á sínum tíma.

Það gerði hins vegar Björg.

„Það er pólitískur ómöguleiki fyrir okkur í Viðreisn og Miðflokknum að ná saman, svo það sé bara sagt skýrt,“ sagði Björg í kappræðum RÚV kvöldið fyrir kjördag.

Sú fullyrðing gerir henni afar erfitt að taka kúvendingu og skella sér í fjögurra flokka stjórn. Hanna Katrín Friðriksson ráðherra er meðal þeirra sem gætu seint sætt sig við samstarf í borginni með Miðflokknum. 

Sömu sögu er að segja um Maríu Rut Kristinsdóttur þingmann Viðreisnar, eiginkonu Ingileifar Friðriksdóttur og aðstoðarmanns Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur formanns flokksins. Flokkurinn lætur sig málefni hinsegin fólks varða á meðan reglulega heyrast efasemdaraddir úr ranni Miðflokksins um fána tengda hinsegin fólki og að tekið sé tillit til þeirra sem skilgreina sig ekki karlkyns eða kvenkyns.

Þótt draumurinn virðist fjarlægður vegna orða Hildar bendir ýmislegt til þess að Hildur ætli ekki að gefa drauminn upp á bátinn. Þar gæti hjálpað að það er ekki Bjargar að tryggja meirihluta með Miðflokknum, hinir flokkarnir þrír ná tólf fulltrúa meirihluta án Viðreisnar, heldur hefði hún val hvort Viðreisn stæði utan slíks meirihluta eða gæti látið til sín taka í breiðum meirihluta. 

Aðstoð frá mágkonu?

Hvort sem það var hluti af pólitísku plotti eða algjör tilviljun vakti athygli gesta á skemmtikvöldi hlaðvarpsins Komið gott eftir kosningar að þar voru allir oddvitarnir fjórir mættir upp á svið og tóku þátt í leikjum sem snerust um að mynda traust. Traust hefur mælst lítið á borgarstjórn síðustu misserin og ljóst að þar er rými til bætingar.

Ólöf Skaftadóttir fékk oddvita flokkanna fjögurra á skemmtikvöld hlaðvarpsins Komið gott í síðustu viku. Þar var skoðað hvort oddvitarnir gætu treyst hver öðrum.vísir/vilhelm

Ólöf Skaftadóttir, annar stjórnandi Komið gott, er dyggur stuðningsmaður Hildar og tengist henni fjölskylduböndum. Jón bróðir hennar er eiginmaður Hildar. Komið gott fór fram daginn eftir fund oddvitanna fjögurra í Hannesarholti. 

Hildur ásamt eiginmanninum Jóni Skaftasyni, bróður Ólafar, á kosninganótt þegar ljóst var að Sjálfstæðisflokkurinn væri að vinna góðan kosningasigur.Vísir/Vilhelm

Hvort æfingar á sviði fyrir framan fullan sal af fólki í Austurbæjarbíói, þar sem oddvitar láta sig falla aftur á bak í fang annarra oddvita eða kveikja saman á kerti, séu líklegar til að hafa áhrif á skoðanir oddvitanna verður hver að dæma fyrir sig. Kannski er þetta bara enn eitt dæmið um litla Ísland, að mágkona verðandi borgarstjóra stýrir vinsælu hlaðvarpi og fær alla oddvitana í kvöldpartý á meðan verið er að reyna að mynda meirihluta í borginni. 

Ólöf sagði í hlaðvarpi sínu í síðustu viku Hildi vera komna með glænýjan hóp og búna að losa sig við líkin í lestinni. Nefndi hún Kjartan, Mörtu og Helga Áss í því samhengi sem hafi verið ættleidd af Miðflokknum.

„Þessi þrjú eru meginástæða þess að Sjálfstæðisflokkurinn fær aldrei að fara í meirihluta. Nú stendur Ari Edwald, sem er oddviti Miðflokksins, uppi með þann kaleik að geta myndað meirihluta með Sjálfstæðsifloknum nema að baklandið í Sjálfstæðisflokknum vill ekki sjá sína gömlu föllnu félaga. Þannig að núna er vandi á hönum. Ari þarf að fara að mannauðsstýra,“ sagði Ólöf.

Skiptir Evrópusambandið máli?

Kunnugir segja að meirihluti Sjálfstæðisflokksins með Viðreisn og Framsókn sé líklega meirihluti sem Hildi myndi persónulega hugnast betur en að fara í sæng með Miðflokknum. Björg og Einar hafa sýnt að þau geta unnið saman, gerðu það bæði hjá Ríkisútvarpinu og svo í borginni þegar Björg var aðstoðarmaður borgarstjóra þar til Einar stakk meirihlutann í bakið. Þáttur Bjargar í þeim pólitíska leik er með öllu óljós.

Björg og Hildur þekkjast ágætlega frá námsárum sínum og úr háskólapólitík þótt þær hafi þar verið í fararbroddi hvor fyrir sína hreyfinguna. Þær eru hins vegar á svipuðum stað í lífinu, með börn á leikskólaaldri og frjálslyndar. Vel fór á með þeim í þættinum Af vængjum fram í aðdraganda kosninga.

Björg er hins vegar í fararbroddi hjá flokki sem er afar spenntur fyrir kosningum sem fyrirhugaðar eru í lok ágúst um aðildarviðræður við Evrópusambandið.

Þótt inni á milli séu Evrópusinnaðir Sjálfstæðismenn er óhætt að fullyrða að meginþorri flokksmanna sé mjög andvígur aðild og um leið að farið verði í aðildarviðræður til að geta lagt samning í atkvæðagreiðslu hjá þjóðinni. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður flokksins í Reykjavík, er meðal þeirra sem vara reglulega við því að horft sé í Evrópuátt.

Armar Guðlaugs Þórs teygja sig víða og voru stuðningsmenn hans á meðal þeirra sem lögðu hönd á plóg til að tryggja Hildi og félögum góða kosningu í borginni. Að taka Evrópusinnaðan flokk í meirihluta í borgarstjórn væri þyrnir í augum margs Sjálfstæðismannsins.

Hildur hefur því um ýmislegt að hugsa þegar kemur að samstarfi við Viðreisn.

Síðasti fundur í dag

Samkvæmt heimildum fréttastofu gerðist lítið í viðræðum flokka á milli í borginni um hvítasunnuhelgina. Síðasti fundur borgarstjórnar er í dag þar sem fjölmargir borgarfulltrúar munu flytja kveðjuræðu og verða oddvitar á borð við Hildi og Einar uppteknir frá hádegi og fram eftir degi.

Telja má ólíklegt að það verði fyrr en í fyrsta lagi síðdegis í dag sem Hildur kemur undan feldi með einhverja stefnu í komandi meirihlutaviðræðum, enda engin ástæða til að flýta sér. Þótt Hildur sé með pálmann í höndunum sýna dæmin að það borgar sig að stíga aðeins eitt skref í einu. Nægir að líta til ótrúlegra vendinga í Hafnarfirði í liðinni viku þar sem vinsæll sitjandi bæjarstjóri missti unna stöðu frá sér og verður að óbreyttu í minnihluta næstu fjögur árin.

Nær ómögulegt er að sjá aðra niðurstöðu en að Hildur verði næsti borgarstjóri Reykvíkinga. Um leið er ómögulegt annað en að hluti Sjálfstæðismanna verði ósáttur við þá leið sem hún á endanum velur. Lykilatriði er þó að sátt sé um þá ákvörðun innan borgarstjórnarflokksins.

Hildur fundaði með borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins á Skarfabakka á fimmtudag.Vísir/Vilhelm

Þar má meðal annars finna reynsluboltann Brynjar Níelsson, sem var orðaður við sæti á lista Miðflokksins í borgarstjórnarkosningunum, en þáði 3. sæti Sjálfstæðismanna og fékk um leið launað starf sem starfsmaður þingflokksins vikurnar fyrir kosningar. Telja má fullvíst að Brynjar vildi heldur fara í samstarf með Miðflokknum. Að sama skapi má finna fólk á lista flokksins sem hugnast betur að stíga í vænginn við Viðreisn og Framsókn.

Brynjar Níelsson mætir hokinn af reynslu í borgarstjórn á meðan sumir fulltrúar flokksins hafa enga reynslu af stjórnmálum, eins og í tilfelli Bjarna Fritzsonar.Vísir/Vilhelm

Hafi Hildur tryggt sér fullan stuðning borgarfulltrúanna níu, hver svo sem ákvörðun hennar verður, ætti flokkurinn að geta róið saman hvort sem er á báti með Miðflokknum eða Viðreisn og Framsókn. Séu uppi skiptar skoðanir meðal borgarfulltrúanna og ólíkar leiðir enn til umræðu þeirra á milli gæti málið flækst fyrir Hildi.

Það er einkenni sterkra stjórnmálaleiðtoga að sjá hlutina í stærra samhengi og taka loks ákvörðun sem þeir geta verið sáttir við. Hildur hefur lýst því yfir að stefnt sé á borgarstjórnarfund 3. júní. Það er eftir átta daga og því hlýtur að fara að draga til tíðinda. Reykvíkingar bíða spenntir.

#hverju #langan #svona #tekur #þetta


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262888607d/-af-hverju-tekur-thetta-svona-langan-tima-

📰 Aðrar fréttir

Mikil reiði vegna morðs á japanskri konu
📅 11.10.2026 👁️ 0
Mikil reiði vegna morðs á japanskri konu
Anna Yagi, japönsk kona á fertugsaldri, fannst látin á hótelherbergi í Okinawa í byrjun mánaðarins eftir að hafa verið kyrkt.The Times segir að lögreg...
Að­dá­endur í­trekað farið yfir mörk - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Að­dá­endur í­trekað farið yfir mörk - Vísir
„Það var ömurlegt. Það er svo mikið stress að starta svona túrum. Maður er bara á fullu og maður er ekki búinn að spila í langan tíma og það er allt a...
Vonast til að geta leyst ráðgátuna um Ameliu Earhart
📅 11.10.2026 👁️ 2
Vonast til að geta leyst ráðgátuna um Ameliu Earhart
Vísindafólk frá bandarískri stofnun um fornleifaarfleið, Archaeological Legacy Institute, og Purdue-háskóla kemur til Nikumaroro-eyju í Kyrrahafi á má...
Fjölskylduharmleikur í Pennsylvaníu
📅 11.10.2026 👁️ 2
Fjölskylduharmleikur í Pennsylvaníu
Maður á fimmtugsaldri skaut sjö ættingja sína og fjölskylduvin á heimili í borginni Erie í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum í gær, áður en hann tók sitt e...
Justice Department investigating television networks over Trump pool coverage
📅 11.10.2026 👁️ 3
Justice Department investigating television networks over Trump pool coverage
The White House had blocked access for CNN, MS Now and Politico, leading them to restrict pool coverage.
UK launch flood taskforce to prepare for extreme winter weather
📅 11.10.2026 👁️ 3
UK launch flood taskforce to prepare for extreme winter weather
The Environment Agency has warned approximately 6.3 million homes and businesses in England remain at risk of flooding.
Heimila losun á fjórum milljónum tunna af hráolíu vegna fellibylsins Isaias
📅 11.10.2026 👁️ 3
Heimila losun á fjórum milljónum tunna af hráolíu vegna fellibylsins Isaias
Fellibylurinn Isaias sem skall að landi við Flórída og Alabama í gær hefur raskað olíuframleiðslu Bandaríkjanna við strendur Mexíkóflóa.Orkumálaráðher...
Hútar sagðir á­byrgir fyrir á­rás á flug­völl - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Hútar sagðir á­byrgir fyrir á­rás á flug­völl - Vísir
Samkvæmt umfjöllun Reuters særðust 309 manns og voru sumir þeirra fluttir á sjúkrahús í lífshættu. Árásin hafi verið gerð fyrirvaralaust og er þetta s...
Þúsundir mótmælenda sagðir hafa verið handteknir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Þúsundir mótmælenda sagðir hafa verið handteknir
Þúsundir mótmælenda voru handteknir í Nýju-Delí, höfuðborg Indlands, í dag þegar mótmælt var breytingum á kjörskrá landsins. Þetta kemur fram í tilkyn...
Blackpink’s Lisa Manobal: How the K-pop star faced a race scandal
📅 10.10.2026 👁️ 4
Blackpink’s Lisa Manobal: How the K-pop star faced a race scandal
Film-maker Sue Kim talks about having unprecedented access to K-Pop idol Lisa Manobal at her most candid.
AI is creating a 'human premium' for art created by people
📅 10.10.2026 👁️ 4
AI is creating a 'human premium' for art created by people
Amid a surge in AI content, many are placing extra value on art that's obviously made by a human. But can that last, asks Ros Atkins
Plan 2: Three friends on a decade of student loans
📅 10.10.2026 👁️ 4
Plan 2: Three friends on a decade of student loans
Lizzy, Charlotte and Libby studied at the same time, but their student debt now looks very different.
MPs attempt to overturn ruling which protects police from being sued
📅 10.10.2026 👁️ 4
MPs attempt to overturn ruling which protects police from being sued
MPs are seeking to stop immunity applying when police fabricate evidence or are dishonest or negligent.
Fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias
📅 10.10.2026 👁️ 5
Fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias
Að minnsta kosti fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias sem skall á strönd Flórída og Alabama í gærkvöld.Dregið hefur úr krafti Isaias en enn e...
Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Bratta­hlíð Ei­ríks rauða - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Bratta­hlíð Ei­ríks rauða - Vísir
Í fréttum af fornleifafundinum í síðustu viku kom fram að menn hafi lengi grunað að þarna væri kirkjurúst frá tímum norrænu byggðarinnar. Sönnunin vær...
Tóku samtalið um land allt
📅 10.10.2026 👁️ 4
Tóku samtalið um land allt
„Samtalið“ svokallaða fór fram í dag, þar sem fólk hittist, ræddi framtíðina og hvernig samfélag það vill. Verkefnið heitir „Tölum saman“ og varð til ...
Út­skrifuð af sjúkra­húsi og send aftur í fangelsið - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Út­skrifuð af sjúkra­húsi og send aftur í fangelsið - Vísir
Hin fimmtuga Pike lifði af tvær banvænar sprautur sem hún fékk á miðvikudaginn í síðustu viku í Tennessee í Bandaríkjunum. Hún komst aftur til meðvitu...
Tveir látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
📅 10.10.2026 👁️ 5
Tveir látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
Að minnsta kosti tveir eru látnir eftir árás á King Khalid-alþjóðaflugvöllinn í Ríad í Sádi-Arabíu í dag. Frá þessu greinir AFP-fréttastofan og hefur ...
Tólf látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
📅 10.10.2026 👁️ 4
Tólf látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
Að minnsta kosti tólf manns eru látnir og 309 særðir eftir árás á King Khalid-alþjóðaflugvöllinn í Ríad í Sádi-Arabíu í dag, að sögn flugmálayfirvalda...
Kalla eftir að­gerðum ekki yfir­lýsingum - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Kalla eftir að­gerðum ekki yfir­lýsingum - Vísir
„Íslensk stjórnvöld voru nýlega meðal 12 ríkja sem sendu frá sér yfirlýsingu um fyrirhugaðar aðgerðir gegn viðskiptum með vörur frá ólöglegum landtöku...
Vill auka að­gengi að verkja­lyfjum - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Vill auka að­gengi að verkja­lyfjum - Vísir
Nú fást lausasölulyf að jafnaði í apótekum. Lyfjastofnun getur þó leyft verslunum að selja ákveðin lyf ef meira en tuttugu kílómetrar eru í næsta apót...
Northern Lights: Aurora stun UK down to England's south coast
📅 10.10.2026 👁️ 4
Northern Lights: Aurora stun UK down to England's south coast
The natural phenomenon, known as the Aurora Borealis, is the result of increased solar activity.
Tvær milljónir manna í landfræðilegu búri
📅 10.10.2026 👁️ 4
Tvær milljónir manna í landfræðilegu búri
Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri Unicef á Íslandi, segir líflína fólks á Gaza að fólk muni eftir þeim, fjármagni hjálp sem það þurfi og ýti á st...
Vill nýjan Úkraínuforseta - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Vill nýjan Úkraínuforseta - Vísir
Í gær greindi Trump frá samkomulagi sínu við Vladímír Pútín Rússlandsforseta um að Rússar hefji þegar í stað útflutning á hundruðum þúsunda tonna af d...
„Ég sé ekki að ís­lenskt sam­félag vilji kasta því fyrir róða“ - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
„Ég sé ekki að ís­lenskt sam­félag vilji kasta því fyrir róða“ - Vísir
Kennarasamband Íslands boðaði til blaðamannafundar í vikunni þar sem sambandið kynnti stefnumótun og áherslur í menntamálum. Kallaði sambandið eftir s...
Mestu skiptir að engan sakaði
📅 10.10.2026 👁️ 4
Mestu skiptir að engan sakaði
Innan við tvær klukkustundir tók að slökkva eldinn í álverinu í dag og var kerskáli tekinn úr rekstri á meðan.„Það er ekki vitað að svo stöddu hvað ol...
Frá dísilsamningi við Pútín til ákalls Trumps um nýjan forseta Úkraínu
📅 10.10.2026 👁️ 4
Frá dísilsamningi við Pútín til ákalls Trumps um nýjan forseta Úkraínu
Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði við fréttamenn fyrir utan Hvíta húsið í dag að hann teldi kominn tíma til að Úkraína fengi nýjan forseta. Hann la...
K-kúrfu hagkerfið
📅 10.10.2026 👁️ 4
K-kúrfu hagkerfið
K-kúrfu hagkerfið Verð­bólga var ekki til­kom­in vegna launa og eyðslu neðri hluta K-leggs­ins í hag­kerf­inu, held­ur vegna að­gerða at­vinnu­lífs­in...
Lést eftir á­rás tígris­dýrs í dýra­garði - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Lést eftir á­rás tígris­dýrs í dýra­garði - Vísir
Lögreglunni barst tilkynning um að maðurinn hefði farið inn á girt svæði klukkan hálf tvö að staðartíma í dag. Í kjölfarið hafi tígrisdýrið ráðist á m...
Erum að horfa á vendipunkt í verðbólgunni
📅 10.10.2026 👁️ 4
Erum að horfa á vendipunkt í verðbólgunni
Hvert einasta sæti var skipað og rúmlega það á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í dag. Ræða formannsins og forsætisráðherrans bar heitið Styrk hö...
Four dead and thousands without power after Hurricane Isaias lashes US
📅 10.10.2026 👁️ 5
Four dead and thousands without power after Hurricane Isaias lashes US
Roofs were ripped off buildings after Isaias barrelled into the US on Friday evening, before it weakened to a post-tropical cyclone.
Karlmaður lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði
📅 10.10.2026 👁️ 5
Karlmaður lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði
Karlmaður er látinn eftir árás tígrisdýrs í dýragarði skammt frá borginni Doncaster í Jórvíkurskíri á Englandi. Lögregla segir manninn hafa farið inn ...
Vilja bíla­stæðin upp úr skot­gröfunum - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Vilja bíla­stæðin upp úr skot­gröfunum - Vísir
Meðal bílastæðanna fimmtán sem verða tekin aftur í notkun eru tvö við Kaffi Babalú á Skólavörðustíg þar sem fréttamaður hitti þær Guðnýju Maríu Jóhann...
Níu létust eftir skot­á­rás - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Níu létust eftir skot­á­rás - Vísir
Lögregla var komin á vettvang aðeins örfáum mínútum eftir að tilkynning barst henni um skothvelli úr íbúðarhúsi. Allir níu voru þegar látnir þegar lög...
Smári og Linda muna vel eftir opnun Smáralindar
📅 10.10.2026 👁️ 5
Smári og Linda muna vel eftir opnun Smáralindar
Verslunarmiðstöðin Smáralind var opnuð á þessum degi fyrir 25 árum. Smári úr Smáraskóla og Linda úr Lindaskóla fengu þann heiður að opna þessa stærstu...
Expedition hopes to find aviator Amelia Earhart's plane on remote island
📅 10.10.2026 👁️ 5
Expedition hopes to find aviator Amelia Earhart's plane on remote island
The team en route to the suspected crash site aim finally to solve the mystery of her 1937 disappearance.
Á annað hundrað sektaðir - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Á annað hundrað sektaðir - Vísir
Um helgina fer fram sýningin Íslenskur landbúnaður 2026 í Laugardalshöll en fagsýningarfyrirtækið Ritsýn stendur fyrir sýningunni. Hátt í hundrað sýne...
New selfie spot in Corralejo made from 100% recycled plastic
📅 10.10.2026 👁️ 5
New selfie spot in Corralejo made from 100% recycled plastic
Visitors to Corralejo have a new place to capture their holiday photographs following the installation of a tourist selfie spot made entirely from rec...
Trump vill að Úkraína skipti um forseta
📅 10.10.2026 👁️ 5
Trump vill að Úkraína skipti um forseta
Donald Trump Bandaríkjaforseti vill að Úkraínumenn velji sér annan forseta sem geti bundið enda á stríð landsins við Rússland.Hann er Volodomyr Zelens...
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
📅 10.10.2026 👁️ 4
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“ For­sæt­is­ráð­herra seg­ir að nið­ur­staða þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­un...
Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
📅 10.10.2026 👁️ 5
Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“ For­sæt­is­ráð­herra seg­ir að nið­ur­staða þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­un...
Þrír réðust á einn - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Þrír réðust á einn - Vísir
Er þetta meðal þeirra mála sem skráð eru í kerfi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá því í dag. Líkamsárásin átti sér stað í umdæmi lögreglustöðvar ...
'Time for Ukraine to get new president,' says Trump after Zelensky condemns diesel deal
📅 10.10.2026 👁️ 4
'Time for Ukraine to get new president,' says Trump after Zelensky condemns diesel deal
Ukraine's leader had said the deal with Russia to release diesel into the US would help Moscow fund the war.
Kirkjugestir mæta í þjóðbúningum
📅 10.10.2026 👁️ 4
Kirkjugestir mæta í þjóðbúningum
Nokkrar þjóðbúningamessur hafa verið haldnar í sunnlenskum kirkjum síðustu ár og hafa þær heppnast einstaklega vel og margir mætt í þjóðbúningum. Pres...
Aftur í fangelsi eftir misheppnaða aftöku
📅 10.10.2026 👁️ 4
Aftur í fangelsi eftir misheppnaða aftöku
Christa Pike, 50 ára bandarísk kona sem lifði af tvær aftökutilraunir með banvænni sprautu í Tennessee-ríki í Bandaríkjunum, hefur verið útskrifuð af ...
Man dies after tiger attack at Yorkshire Wildlife Park
📅 10.10.2026 👁️ 4
Man dies after tiger attack at Yorkshire Wildlife Park
The visitor attraction near Doncaster was evacuated on Saturday and remains closed for the weekend.
Aníta Briem á von á þriðja barninu
📅 10.10.2026 👁️ 5
Aníta Briem á von á þriðja barninu
Leikkonan Aníta Briem og Hafþór Waldorff, eiga von á sínu öðru barni saman. Fyrir eiga þau dótturina Lúnu, sem fæddist í nóvember 2024. Parið gekk í g...
Á­kvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Á­kvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað - Vísir
„Ég eyddi öllu sumrinu á spítala því ég lenti í því að fá ristilpoka sem sprakk og gerði gat á ristilinn á mér, með tilheyrandi sýkingum og veseni. Ég...
Forsetaframbjóðandi hafnar því að vera handvalinn af Höllu
📅 10.10.2026 👁️ 5
Forsetaframbjóðandi hafnar því að vera handvalinn af Höllu
Frambjóðendur til forseta Alþýðusambands Íslands hafna því að þeir séu fulltrúar ólíkra fylkinga innan sambandsins.Arnaldur Grétarsson, sérfræðingur í...
Gengu kröfugöngu niður Laugaveg í tilefni alþjóðlegs aðgerðadags fyrir Palestínu
📅 10.10.2026 👁️ 5
Gengu kröfugöngu niður Laugaveg í tilefni alþjóðlegs aðgerðadags fyrir Palestínu
Fjöldi fólks gekk kröfugöngu frá Hlemmi að Austurvelli í tilefni alþjóðlegs aðgerðadags fyrir Palestínu í dag, 10. október.Í tilkynningu Félagsins Ísl...