600 þúsund manna Ís­land – ætlum við að byggja það sjálf? - Vísir

600 þúsund manna Ís­land – ætlum við að byggja það sjálf? - Vísir

600 þúsund manna Ís­land – ætlum við að byggja það sjálf? - Vísir

Á laugardaginn göngum við til kosninga um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið og það er ekkert leyndarmál að ég mun merkja við nei á kjörseðlinum.

Ekki vegna þess að ég telji allt fullkomið á Íslandi. Þvert á móti. Við þurfum að gera betur í landbúnaði, byggðamálum, nýsköpun og uppbyggingu atvinnulífs um allt land.

Bændur kölluðu ekki eftir kollvörpun

Vorið 2025 fór atvinnuvegaráðherra ásamt Bændasamtökum Íslands hringinn í kringum landið og fundaði með bændum undir yfirskriftinni „Frá áskorunum til lausna“. Markmiðið var að ræða framtíð íslensks landbúnaðar og finna raunhæfar lausnir.

Ég sat hluta af þessum fundum og mín upplifun var ekki sú að bændur væru að kalla eftir kollvörpun á starfsumhverfi sínu. Þeir kölluðu eftir því að laga það sem betur mætti fara: bæta afkomu, auðvelda nýliðun, auka fjárfestingar, efla nýsköpun og skapa meiri fyrirsjáanleika.

Það skiptir máli vegna þess að innganga í ESB væri ekki einföld lagfæring á íslenska stuðningskerfinu. Hún fæli í sér grundvallarbreytingu. Sameiginleg landbúnaðarstefna ESB yrði ramminn, tollvernd gagnvart öðrum ríkjum sambandsins félli niður og stuðningskerfið breyttist verulega.

Sameiginleg stefna hentar okkur illa

Ég hef áður skrifað um efasemdir mínar um að sameiginleg landbúnaðarstefna ESB henti Íslandi. Það þýðir ekki að allt innan hennar sé slæmt. Langt því frá. Við getum lært margt af stuðningskerfum ESB, rétt eins og við getum lært af Norðmönnum.

En Ísland er eyja á norðurhjara Atlantshafsins með örsmáan landbúnað, stutt ræktunartímabil, sérstaka sjúkdómastöðu búfjár og mikla þörf fyrir að geta mótað matvælastefnu eftir eigin aðstæðum.

Ég sé einfaldlega ekki ávinninginn af því að skipta út því svigrúmi fyrir sameiginlega stefnu sem þarf að þjóna mjög ólíkum aðstæðum víðs vegar um Evrópu. Þar að auki vitum við ekki einu sinni hvernig sú stefna mun líta út eftir tíu eða tuttugu ár.

Úkraína stefnir að aðild að ESB og þar er landbúnaðarland talið í tugum milljóna hektara. Innganga eins stærsta landbúnaðarveldis Evrópu hlýtur að verða eitt stærsta úrlausnarefni sameiginlegu landbúnaðarstefnunnar á næstu árum.

Enginn getur í dag sagt nákvæmlega hvernig CAP verður fjármögnuð eða útfærð eftir slíka stækkun. Það er ekki hræðsluáróður. Það er einfaldlega óvissa sem ábyrgðarlaust væri að horfa fram hjá.

Samspil landbúnaðar og byggðastefnu

Síðustu daga hefur verið talað um að ESB geti fært okkur fleiri verkfæri til byggðaþróunar. Það er rétt. ESB hefur öfluga sjóði og fjölmörg verkfæri á því sviði.

En hér þurfum við að spyrja einfaldrar spurningar:

Hvaða verkfæri vantar okkur í raun heimild til að smíða sjálf?

Ég þekki af eigin raun, meðal annars sem fyrrverandi sveitarstjórnarmaður í Dalabyggð, hvað markviss byggðaþróunarverkefni geta gert. DalaAuður, sem varð til innan verkefnisins Brothættra byggða, er gott dæmi um það. Slík verkefni geta virkjað heimafólk, kallað fram hugmyndir, skapað samstarf og komið verkefnum af stað sem annars hefðu jafnvel aldrei orðið að veruleika.

Þess vegna er gagnrýni mín ekki á slík verkefni – þvert á móti. En það er umhugsunarvert, og eiginlega hálfnöturlegt, að samfélag þurfi nánast að fá stimpilinn „brothætt byggð“ áður en við virkjum af fullum krafti þau verkfæri sem við vitum að geta skilað árangri.

Ætti góð byggðastefna ekki einmitt að grípa fyrr inn í? Ættum við ekki að fjárfesta í tækifærunum áður en við þurfum að bregðast við vandanum?

Það er sú hugsun sem ég vil sjá í íslenskri byggðastefnu. Ekki bara björgunaraðgerðir þegar samfélög eru komin í vörn, heldur langtímastefnu sem gerir byggðum kleift að sækja fram.

Eftir að hafa fylgst með samskiptum ríkis og sveitarfélaga sem kjörinn fulltrúi í litlu sveitarfélagi á undanförnum árum á ég erfitt með að sjá hvernig aðild að ESB ein og sér ætti að breyta því hvernig við forgangsröðum fjármunum og tækifærum milli byggða hér innanlands. Sú ábyrgð verður áfram á okkar verksviði.

Ekki byggja framtíðina á nostalgíu

Við þurfum heldur ekki að endurskapa íslenskar sveitir eins og þær voru fyrir hálfri öld. Fólki hefur fækkað í frumframleiðslu. Tæknin hefur breyst. Búin hafa stækkað og framleiðni aukist. Sú þróun verður ekki stöðvuð og það væri heldur ekki skynsamlegt markmið.

Við eigum að byggja sveitir framtíðarinnar. Þar á að vera öflug matvælaframleiðsla, en líka nýsköpun, fullvinnsla, ferðaþjónusta, fjarvinna, iðnaður og nýjar atvinnugreinar sem við höfum jafnvel ekki séð fyrir enn. Það er byggðastefna sem horfir fram á við.

Sjóðir leysa ekki vandann einir og sér

Í lok síðasta árs kom ég til Rúmeníu, hitti þar bændur og heimsótti nokkur bú í nágrenni borgarinnar Brașov. Það var athyglisvert hversu kunnugleg umræðan var.

Þar var rætt um nýliðun, hækkandi meðalaldur bænda og erfiðleikana við að fá ungt fólk til að taka við búskap – þrátt fyrir að Rúmenía hafi í nærri tvo áratugi verið innan sameiginlegrar landbúnaðarstefnu ESB og haft aðgang að bæði CAP og umfangsmiklum evrópskum byggða- og þróunarsjóðum.

Þetta þýðir ekki að sjóðirnir séu gagnslausir. Þvert á móti geta þeir fjármagnað góð verkefni og skapað mikil tækifæri.

En reynslan minnir okkur á mikilvægt atriði: Peningar og stuðningskerfi geta verið öflug verkfæri. Þau leysa ekki sjálfkrafa samfélagsleg vandamál. Nýliðun í landbúnaði snýst líka um afkomu, framtíðartrú, aðgang að landi og fjármagni, samfélagsgerð og hvort ungt fólk sjái raunveruleg tækifæri í því að byggja líf sitt í dreifðum byggðum líkt og Sunna Þórarinsdóttir benti á í grein sinni fyrir nokkrum dögum.

Við vitum hvað þarf að gera

Fyrir örfáum dögum birti atvinnuvegaráðuneytið enn eina greininguna á stuðningskerfi íslensks landbúnaðar. Niðurstöðurnar koma ekki sérstaklega á óvart.

Þar eru talin tækifæri til að einfalda kerfið og beina stuðningi betur að vexti og verðmætasköpun, nýsköpun, nýliðun, kynslóðaskiptum og styrkingu dreifðra byggða. Þar er jafnframt skoðað hvað við getum lært af bæði Noregi og Evrópusambandinu.

Gott og vel. Gerum það þá.

Við þurfum ekki að ganga í Evrópusambandið til að læra af því sem þar er vel gert. Við þurfum ekki heldur að ganga í Noreg til að læra af Norðmönnum.

Við höfum skýrslurnar. Við höfum landbúnaðarstefnu. Við höfum matvælastefnu. Ráðherra hefur ferðast um landið og rætt milliliðalaust við bændur.

Við vitum að fjárfestingar þurfa að aukast. Við vitum að auðvelda þarf nýliðun. Við vitum að auka þarf verðmætasköpun. Við vitum að styrkja þarf rannsóknir, þróun og nýsköpun. Og við vitum að íslensk byggðastefna þarf meiri festu og meiri pólitískan vilja.

Það þarf að bretta upp ermar og koma sér að verki. Mitt nei er ekki nei við Evrópu. Það er ekki nei við samstarfi og alls ekki nei við breytingum.

  • Það er já við því að við tökum sjálf ábyrgð.
  • Já við því að taka það besta úr kerfum nágrannaþjóða okkar og laga það að íslenskum aðstæðum.
  • Já við því að móta landbúnaðarstefnu sem tryggir matvælaframleiðslu til framtíðar.
  • Já við nútímalegri byggðastefnu sem byggir ekki á nostalgíu um veröld sem var, heldur tækifærum samfélagsins sem við viljum byggja.
  • Og já við því að íslensk stjórnmál axli ábyrgð á þeim verkefnum sem við höfum sjálf látið sitja á hakanum.

Við eigum þekkinguna. Við eigum fjármunina. Við höfum verkfærin. Nú þurfum við bara að nota þau.

Þess vegna segi ég NEI á laugardaginn.

Höfundur er formaður sauðfjárbænda BÍ og fv. sveitarstjórnarmaður í Dalabyggð.

#manna #við #ætlum #ísland #þúsund


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262926258d/600-thusund-manna-is-land-aetlum-vid-ad-byggja-thad-sjalf-

📰 Aðrar fréttir

Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 1
Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Það er vissulega mikið í húfi en að sjálfsögðu er bannað að svindla....
Mikil reiði vegna morðs á japanskri konu
📅 11.10.2026 👁️ 2
Mikil reiði vegna morðs á japanskri konu
Anna Yagi, japönsk kona á fertugsaldri, fannst látin á hótelherbergi í Okinawa í byrjun mánaðarins eftir að hafa verið kyrkt.The Times segir að lögreg...
Að­dá­endur í­trekað farið yfir mörk - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Að­dá­endur í­trekað farið yfir mörk - Vísir
„Það var ömurlegt. Það er svo mikið stress að starta svona túrum. Maður er bara á fullu og maður er ekki búinn að spila í langan tíma og það er allt a...
Vonast til að geta leyst ráðgátuna um Ameliu Earhart
📅 11.10.2026 👁️ 3
Vonast til að geta leyst ráðgátuna um Ameliu Earhart
Vísindafólk frá bandarískri stofnun um fornleifaarfleið, Archaeological Legacy Institute, og Purdue-háskóla kemur til Nikumaroro-eyju í Kyrrahafi á má...
Fjölskylduharmleikur í Pennsylvaníu
📅 11.10.2026 👁️ 3
Fjölskylduharmleikur í Pennsylvaníu
Maður á fimmtugsaldri skaut sjö ættingja sína og fjölskylduvin á heimili í borginni Erie í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum í gær, áður en hann tók sitt e...
Justice Department investigating television networks over Trump pool coverage
📅 11.10.2026 👁️ 3
Justice Department investigating television networks over Trump pool coverage
The White House had blocked access for CNN, MS Now and Politico, leading them to restrict pool coverage.
UK launch flood taskforce to prepare for extreme winter weather
📅 11.10.2026 👁️ 3
UK launch flood taskforce to prepare for extreme winter weather
The Environment Agency has warned approximately 6.3 million homes and businesses in England remain at risk of flooding.
UK launches flood taskforce to prepare for extreme winter weather
📅 11.10.2026 👁️ 1
UK launches flood taskforce to prepare for extreme winter weather
The Environment Agency has warned approximately 6.3 million homes and businesses in England remain at risk of flooding.
Heimila losun á fjórum milljónum tunna af hráolíu vegna fellibylsins Isaias
📅 11.10.2026 👁️ 3
Heimila losun á fjórum milljónum tunna af hráolíu vegna fellibylsins Isaias
Fellibylurinn Isaias sem skall að landi við Flórída og Alabama í gær hefur raskað olíuframleiðslu Bandaríkjanna við strendur Mexíkóflóa.Orkumálaráðher...
Úkraína ætti að kjósa nýjan forseta – Trump (MYNDBAND)
📅 11.10.2026 👁️ 1
Úkraína ætti að kjósa nýjan forseta – Trump (MYNDBAND)
Úkraína ætti að kjósa nýjan forseta – Trump (MYNDBAND) Fréttin11. október 2026Erlent, Trump, ÚkraínustríðiðLeave a Comment Úkraína ætti að skipta út V...
Hútar sagðir á­byrgir fyrir á­rás á flug­völl - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Hútar sagðir á­byrgir fyrir á­rás á flug­völl - Vísir
Samkvæmt umfjöllun Reuters særðust 309 manns og voru sumir þeirra fluttir á sjúkrahús í lífshættu. Árásin hafi verið gerð fyrirvaralaust og er þetta s...
Blóðug árás á alþjóðaflugvöllinn í Riyadh – 12 látnir og yfir 300 særðir
📅 10.10.2026 👁️ 1
Blóðug árás á alþjóðaflugvöllinn í Riyadh – 12 látnir og yfir 300 særðir
Blóðug árás á alþjóðaflugvöllinn í Riyadh – 12 látnir og yfir 300 særðir Fréttin10. október 2026ErlentLeave a Comment King Khalid-alþjóðaflugvöllurinn...
Þúsundir mótmælenda sagðir hafa verið handteknir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Þúsundir mótmælenda sagðir hafa verið handteknir
Þúsundir mótmælenda voru handteknir í Nýju-Delí, höfuðborg Indlands, í dag þegar mótmælt var breytingum á kjörskrá landsins. Þetta kemur fram í tilkyn...
Blackpink’s Lisa Manobal: How the K-pop star faced a race scandal
📅 10.10.2026 👁️ 4
Blackpink’s Lisa Manobal: How the K-pop star faced a race scandal
Film-maker Sue Kim talks about having unprecedented access to K-Pop idol Lisa Manobal at her most candid.
AI is creating a 'human premium' for art created by people
📅 10.10.2026 👁️ 4
AI is creating a 'human premium' for art created by people
Amid a surge in AI content, many are placing extra value on art that's obviously made by a human. But can that last, asks Ros Atkins
Plan 2: Three friends on a decade of student loans
📅 10.10.2026 👁️ 4
Plan 2: Three friends on a decade of student loans
Lizzy, Charlotte and Libby studied at the same time, but their student debt now looks very different.
MPs attempt to overturn ruling which protects police from being sued
📅 10.10.2026 👁️ 4
MPs attempt to overturn ruling which protects police from being sued
MPs are seeking to stop immunity applying when police fabricate evidence or are dishonest or negligent.
Fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias
📅 10.10.2026 👁️ 5
Fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias
Að minnsta kosti fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias sem skall á strönd Flórída og Alabama í gærkvöld.Dregið hefur úr krafti Isaias en enn e...
Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Bratta­hlíð Ei­ríks rauða - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Bratta­hlíð Ei­ríks rauða - Vísir
Í fréttum af fornleifafundinum í síðustu viku kom fram að menn hafi lengi grunað að þarna væri kirkjurúst frá tímum norrænu byggðarinnar. Sönnunin vær...
Tóku samtalið um land allt
📅 10.10.2026 👁️ 4
Tóku samtalið um land allt
„Samtalið“ svokallaða fór fram í dag, þar sem fólk hittist, ræddi framtíðina og hvernig samfélag það vill. Verkefnið heitir „Tölum saman“ og varð til ...
Frakkland í krísu og fjarhægrið sækir á
📅 10.10.2026 👁️ 1
Frakkland í krísu og fjarhægrið sækir á
Frakkland í krísu og fjarhægrið sækir á Að­eins 15 pró­sent hafa já­kvætt álit á Macron Frakk­lands­for­seta. Eldsneytis­verð í Frakklandi er í sögu­l...
Út­skrifuð af sjúkra­húsi og send aftur í fangelsið - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Út­skrifuð af sjúkra­húsi og send aftur í fangelsið - Vísir
Hin fimmtuga Pike lifði af tvær banvænar sprautur sem hún fékk á miðvikudaginn í síðustu viku í Tennessee í Bandaríkjunum. Hún komst aftur til meðvitu...
Tveir látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
📅 10.10.2026 👁️ 5
Tveir látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
Að minnsta kosti tveir eru látnir eftir árás á King Khalid-alþjóðaflugvöllinn í Ríad í Sádi-Arabíu í dag. Frá þessu greinir AFP-fréttastofan og hefur ...
Tólf látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
📅 10.10.2026 👁️ 4
Tólf látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
Að minnsta kosti tólf manns eru látnir og 309 særðir eftir árás á King Khalid-alþjóðaflugvöllinn í Ríad í Sádi-Arabíu í dag, að sögn flugmálayfirvalda...
Kalla eftir að­gerðum ekki yfir­lýsingum - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Kalla eftir að­gerðum ekki yfir­lýsingum - Vísir
„Íslensk stjórnvöld voru nýlega meðal 12 ríkja sem sendu frá sér yfirlýsingu um fyrirhugaðar aðgerðir gegn viðskiptum með vörur frá ólöglegum landtöku...
Vill auka að­gengi að verkja­lyfjum - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Vill auka að­gengi að verkja­lyfjum - Vísir
Nú fást lausasölulyf að jafnaði í apótekum. Lyfjastofnun getur þó leyft verslunum að selja ákveðin lyf ef meira en tuttugu kílómetrar eru í næsta apót...
Northern Lights: Aurora stun UK down to England's south coast
📅 10.10.2026 👁️ 4
Northern Lights: Aurora stun UK down to England's south coast
The natural phenomenon, known as the Aurora Borealis, is the result of increased solar activity.
Tvær milljónir manna í landfræðilegu búri
📅 10.10.2026 👁️ 4
Tvær milljónir manna í landfræðilegu búri
Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri Unicef á Íslandi, segir líflína fólks á Gaza að fólk muni eftir þeim, fjármagni hjálp sem það þurfi og ýti á st...
Vill nýjan Úkraínuforseta - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Vill nýjan Úkraínuforseta - Vísir
Í gær greindi Trump frá samkomulagi sínu við Vladímír Pútín Rússlandsforseta um að Rússar hefji þegar í stað útflutning á hundruðum þúsunda tonna af d...
„Ég sé ekki að ís­lenskt sam­félag vilji kasta því fyrir róða“ - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
„Ég sé ekki að ís­lenskt sam­félag vilji kasta því fyrir róða“ - Vísir
Kennarasamband Íslands boðaði til blaðamannafundar í vikunni þar sem sambandið kynnti stefnumótun og áherslur í menntamálum. Kallaði sambandið eftir s...
Mestu skiptir að engan sakaði
📅 10.10.2026 👁️ 4
Mestu skiptir að engan sakaði
Innan við tvær klukkustundir tók að slökkva eldinn í álverinu í dag og var kerskáli tekinn úr rekstri á meðan.„Það er ekki vitað að svo stöddu hvað ol...
Frá dísilsamningi við Pútín til ákalls Trumps um nýjan forseta Úkraínu
📅 10.10.2026 👁️ 4
Frá dísilsamningi við Pútín til ákalls Trumps um nýjan forseta Úkraínu
Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði við fréttamenn fyrir utan Hvíta húsið í dag að hann teldi kominn tíma til að Úkraína fengi nýjan forseta. Hann la...
K-kúrfu hagkerfið
📅 10.10.2026 👁️ 4
K-kúrfu hagkerfið
K-kúrfu hagkerfið Verð­bólga var ekki til­kom­in vegna launa og eyðslu neðri hluta K-leggs­ins í hag­kerf­inu, held­ur vegna að­gerða at­vinnu­lífs­in...
Lést eftir á­rás tígris­dýrs í dýra­garði - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Lést eftir á­rás tígris­dýrs í dýra­garði - Vísir
Lögreglunni barst tilkynning um að maðurinn hefði farið inn á girt svæði klukkan hálf tvö að staðartíma í dag. Í kjölfarið hafi tígrisdýrið ráðist á m...
Páll og Selma Eir eiga von á dreng
📅 10.10.2026 👁️ 1
Páll og Selma Eir eiga von á dreng
Páll og Selma Eir eiga von á dreng Selma Eir og bumbubúinnEkki kemur fram í færslunni hvenær megi búast við þeim litla Mynd: Instagram Páll Edwald og ...
Erum að horfa á vendipunkt í verðbólgunni
📅 10.10.2026 👁️ 4
Erum að horfa á vendipunkt í verðbólgunni
Hvert einasta sæti var skipað og rúmlega það á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í dag. Ræða formannsins og forsætisráðherrans bar heitið Styrk hö...
Four dead and thousands without power after Hurricane Isaias lashes US
📅 10.10.2026 👁️ 5
Four dead and thousands without power after Hurricane Isaias lashes US
Roofs were ripped off buildings after Isaias barrelled into the US on Friday evening, before it weakened to a post-tropical cyclone.
Karlmaður lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði
📅 10.10.2026 👁️ 5
Karlmaður lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði
Karlmaður er látinn eftir árás tígrisdýrs í dýragarði skammt frá borginni Doncaster í Jórvíkurskíri á Englandi. Lögregla segir manninn hafa farið inn ...
Sakar verkalýðsleiðtoga um að vinna gegn hagsmunum launafólks
📅 10.10.2026 👁️ 1
Sakar verkalýðsleiðtoga um að vinna gegn hagsmunum launafólks
Sakar verkalýðsleiðtoga um að vinna gegn hagsmunum launafólks Sólveig Anna JónsdóttirBjörn gagnrýnir Sólveigu Önnu rækilega í nýrri færslu. Mynd: Bára...
Vilja bíla­stæðin upp úr skot­gröfunum - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Vilja bíla­stæðin upp úr skot­gröfunum - Vísir
Meðal bílastæðanna fimmtán sem verða tekin aftur í notkun eru tvö við Kaffi Babalú á Skólavörðustíg þar sem fréttamaður hitti þær Guðnýju Maríu Jóhann...
Níu létust eftir skot­á­rás - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Níu létust eftir skot­á­rás - Vísir
Lögregla var komin á vettvang aðeins örfáum mínútum eftir að tilkynning barst henni um skothvelli úr íbúðarhúsi. Allir níu voru þegar látnir þegar lög...
Smári og Linda muna vel eftir opnun Smáralindar
📅 10.10.2026 👁️ 5
Smári og Linda muna vel eftir opnun Smáralindar
Verslunarmiðstöðin Smáralind var opnuð á þessum degi fyrir 25 árum. Smári úr Smáraskóla og Linda úr Lindaskóla fengu þann heiður að opna þessa stærstu...
Expedition hopes to find aviator Amelia Earhart's plane on remote island
📅 10.10.2026 👁️ 5
Expedition hopes to find aviator Amelia Earhart's plane on remote island
The team en route to the suspected crash site aim finally to solve the mystery of her 1937 disappearance.
Á annað hundrað sektaðir - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Á annað hundrað sektaðir - Vísir
Um helgina fer fram sýningin Íslenskur landbúnaður 2026 í Laugardalshöll en fagsýningarfyrirtækið Ritsýn stendur fyrir sýningunni. Hátt í hundrað sýne...
Carla Jade vann Eriku Nótt naumlega eftir dramatískan bardaga
📅 10.10.2026 👁️ 1
Carla Jade vann Eriku Nótt naumlega eftir dramatískan bardaga
Carla Jade vann Eriku Nótt naumlega eftir dramatískan bardaga Carla og ErikaErika var afar ósátt við úrslitin Mynd: Skjáskot Carla Jade hélt Misfits-m...
New selfie spot in Corralejo made from 100% recycled plastic
📅 10.10.2026 👁️ 5
New selfie spot in Corralejo made from 100% recycled plastic
Visitors to Corralejo have a new place to capture their holiday photographs following the installation of a tourist selfie spot made entirely from rec...
Trump vill að Úkraína skipti um forseta
📅 10.10.2026 👁️ 5
Trump vill að Úkraína skipti um forseta
Donald Trump Bandaríkjaforseti vill að Úkraínumenn velji sér annan forseta sem geti bundið enda á stríð landsins við Rússland.Hann er Volodomyr Zelens...
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
📅 10.10.2026 👁️ 4
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“ For­sæt­is­ráð­herra seg­ir að nið­ur­staða þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­un...
Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
📅 10.10.2026 👁️ 5
Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“ For­sæt­is­ráð­herra seg­ir að nið­ur­staða þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­un...
Þrír réðust á einn og barnavernd komin í málið
📅 10.10.2026 👁️ 1
Þrír réðust á einn og barnavernd komin í málið
Þrír réðust á einn og barnavernd komin í málið Mynd: Lára Garðarsdóttir Tveir einstaklingar gista í fangaklefa lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þegar...