Nokkrum vegum á vesturhelmingi landsins verður lokað eða þeim stýrt með umferðarstýringu hluta úr degi. Í Dölunum verður einstefna á Klofningsvegi frá klukkan 9, úr Hvammssveit, um Fellsströnd, yfir á Skarðsströnd og að Saurbæ. Á Vestfjörðum verður Kollsvíkurvegur, vegur númer 615, lokaður frá Hænuvík og að Kollsvík.
Vestfjarðargöng lúta svo umferðarstýringu frá lögreglu frá klukkan hálftíu nú í morgunsárið og fram til klukkan tíu í kvöld, við alla þrjá munna ganganna.
Á Örlygshafnarvegi verður síðan einstefna frá því klukkan átta og eitthvað framyfir myrkvann, frá Barðastrandarvegi að Látrabjargi. Hraðatakmarkanir verða einnig á svæðinu að því er segir á síðu Vegagerðarinnar. Svipaða sögu er að segja frá Rauðasandsvegi þar sem verður einstefna frá Örlygshafnarvegi og á Rauðasand.
Á höfuðborgarsvæðinu verður líka eitthvað um lokanir, Suðurgötu og Ægisíðu verður lokað að hluta fyrir umferð frá kl 15:00 – 20:00 og í Vogum verður einstefna á á Vatnsleysustrandarvegi, frá Vogum að Kúagerði, frá kl. 11. Á Garðskagavegi verður einstefna frá Nesvegi og að Sandgerði frá klukkan 11 og í Grindavík veður Bláalónsvegur lokaður frá klukkan 11. til 23.
Nánari upplýsingar er að finna um þetta allt saman á vefsíðu Vegagerðarinnar, umferðin.is.
Hlynur Snorrason yfirlögregluþjónn á Vestfjörðum, sagði í samtali við fréttastofu í gærkvöldi að umferðin væri þegar tekin að þyngjast en lögregla hefur hugað að undirbýuningi fyrir viðburðinn í marga mánuði. Þannig hefur verið fjölgað í liðinu, því á venjulegum miðvikudegi í ágúst væru sex lögreglumenn á vakt á öllum Vestfjörðum. Í dag verður þeim hinsvegar fjölgað um sextán hið minnsta, eða tæplega fjórfalt fleiri en á venjulegum ágústdegi.