Tvær viljayfirlýsingar um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Reykjavík á næstu árum voru undirritaðar í dag. Önnur var gerð við Bjarg íbúðafélag en hin við Félag íslenskra náttúrufræðinga, FÍN, og Visku, stéttarfélag háskólamenntaðra. Viljayfirlýsingarnar voru samþykktar í borgarráði 7. maí.
Reykjavíkurborg hyggst úthluta Bjargi lóðum með byggingarrétti fyrir búseturéttar- eða leiguíbúðir á nokkrum stöðum í borginni. Þar á meðal í Gufunesi, á Veðurstofuhæð, í Grundarhverfi á Kjalarnesi og á Kringlureit. Þá hefur borgarráð samþykkt að Bjarg taki við lóðarvilyrði fyrir byggingarrétti á allt að 50 íbúðum við Leirtjörn í Úlfarsárdal. Fyrirhugað er að þar rísi húsnæði fyrir eldri borgara en vilyrðinu hafði áður verið úthlutað Leigufélagi aldraðra.
Félagsbústaðir fá 5-10% af íbúðunum á kostnaðarverði
Í viljayfirlýsingunni við FÍN og Visku er kveðið á um vilyrði fyrir uppbyggingu á þróunarlóðum.
Í tilkynningu borgarinnar segir að í báðum samningum sé lögð áhersla á fjölbreyttar húsagerðir, blöndun íbúðategunda innan hverfa og aukið framboð smærri íbúða fyrir ólíka félagshópa. Félögin skuldbinda sig til að framselja Félagsbústöðum á bilinu 5 til 10% íbúða á kostnaðarverði.
„Ég fagna þessum viljayfirlýsingum mjög og þessu öfluga samstarfi um uppbyggingu fjölbreytts og aðgengilegs húsnæðis í Reykjavík,“ er haft eftir Heiðu Björgu Hilmisdóttur borgarstjóra í tilkynningunni. „Það er frumskylda sveitarfélaga að stuðla að því að fólk geti eignast öruggt heimili á viðráðanlegum kjörum og með þessum verkefnum tökum við mikilvæg skref til að mæta þeirri ábyrgð af festu og metnaði.“