Tímamet var slegið þegar fjórir geimfarar á vegum bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA komu að Alþjóðlegu geimstöðinni í nótt með fari SpaceX. Áhöfn á vegum NASA hefur aldrei verið fljótari að stöðinni því ferðin þangað frá Canaveral-höfða á Flórída tók aðeins tæpar átta klukkustundir, 7 tíma og 55 mínútur nákvæmlega.
Staðsetning stöðvarinnar á sporbaug einfaldaði málið. Þetta er þrettánda áhöfnin sem fer með Dragon-fari SpaceX að geimstöðinni og verður þar næstu sex mánuði. Leiðangursstjórinn Jessica Watkins sagði þrettán happatölu. Hún er fyrsta svarta konan til að leiða geimferð.
Þetta er önnur dvöl Watkins í geimstöðinni því hún var hluti áhafnar sem dvaldi þar fyrir fjórum árum. Hinir þrír eru allir nýgræðingar í geimferðum, Bandaríkjamaðurinn Luke Delaney, Rússinn Sergey Teter-yatni-kov og Kanadamaðurinn Joshua Kutryk.
Eiginkona Kutryks fæðir barn seint í nóvember. NASA og kanadíska geimferðastofnunin ætla að tryggja að hann geti verið í sambandi við fjölskyldu sína.
Leiðangurinn hafði tafist um þrjár vikur vegna leka í eldsneytiskerfi og um tíma var útlit fyrir að þung skýjahula setti strik í reikninginn. Nógu lengi birti til svo unnt varð að skjóta farinu á loft.